E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  UM RÓMARVEFINN
Umsagnir
  Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar,
því af þeim vefum ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til
vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm

Febrúar 2010
Þakkir
Við nemendur í 8. - 10. bekk Waldorfskólans í Lækjarbotnum erum á leið til Ítaliu í maí. Rómarvefurinn hefur verið mjög hjálplegur við undirbúning ferðarinnar og á örugglega eftir að nýtast okkur ennþá meira.

Okkur langar að þakka fyrir.

Kveðja,

Ágúst, Kalli, Vaka, Sólveig, Þóra, Sunneva, Alexander og Þóra.

Nóvember 2006
Konfekt
Ég var að skoða Rómarvefinn og ég er gersamlega heillaður. Þetta er flottasti og skemmtilegasti vefur sem ég hef nokkurntímann séð! Ég hef aldrei komið til Rómar, en það er á stefnuskránni. Ég hef verið sögukennari í tíu ár og eitt af mínum uppáhaldsefnum er Rómaveldi . Þessi vefur er algert konfekt.

- Sigurður, sögukennari

Október 2006

Gott framtak
Er á leið til Rómar í týpíska túristaferð. Fann síðuna á Google. Þetta er frábær síða, gott framtak.

- Ásgeir

RÓMARVEFURINN Í FJÖLMIÐLUM

Í tilefni þess að Rómarvefurinn fagnaði fimm ára starfsafmæli vorið og sumarið 2006 tók blaðamaður Vikunnar viðtal við ritstjóra vefjarins. Hér má lesa viðtalið með því að smella á síðu 1 og síðu 2.

Til að fræðast meira um höfund vefjarins má fara aftur í kaflann Um vefinn og smella á Um höfund.


September 2006
Flott og fróðlegt
Ég verð nú að segja það að ég fór inn á Rómarvefinn um daginn svona rétt til að glugga, þetta er svona flottur vefur að ég sat fastur þarna inni í fleiri klukkutíma og las mér til um sögu rómverja frá fyrstu tíð. Þetta er einn flottasta og fróðlegasta síða sem ég hef farið á í langan tíma.

- Halfdán

Júní 2006
Ítalíuferð
Við fórum frábæra ferð um Ítalíu á síðasta ári. Við skoðuðum Rómarvefinn mikið til þess að skipuleggja ferðina okkar sem var sú besta sem við höfum öll farið í. Bestu kveðjur og þakkir frá Blönduósi

Gullnáma
Rómarvefurinn er hreinasta gullnáma fyrir unnendur Ítalíu enda má þar finna upplýsingar um næstum allt það sem tengist ítalskri menningu.

- Fréttablaðið, 17.06.06.

Grein úr Fréttablaðinu, 17.06.06.
Júní 2006
Fyrsti áfangastaðurinn fyrir þá
sem vilja ferðast til Rómar

Hvern langar ekki til Rómar, höfuðborgar Evrópu? Rómarvefurinn er fullur af fróðleik um Róm og fyrsti áfangastaðurinn fyrir þá sem vilja ferðast - þó ekki væri nema í huganum - til Rómar. Við óskum Kristni Péturssyni ritstjóra vefsins og öðrum aðstandendum til hamingju með fimm ára afmælið og góðs gengis. Það er mikill áfangi og meira en að segja það að halda úti vef í fimm ár.

- Modernus.is, 29.05.2006


Febrúar 2005
Rómarvefurinn til leiðsagnar
Ég er búinn að vafra töluvert um hann [Rómarefinn] og verð að segja að upplýsingarnar á honum eru hreint út sagt einstaklegar fræðandi og aðgengilegar. Þrátt fyrir að hafa þvælst nokkuð víða, þá höfum við hjónakornin aldrei til Rómar komið. Í maí ætlum við ... til Ítalíu í ca tvær vikur á eigin vegum. Við munum verða ca. viku í Róm og ca. viku í nágrenni Amalfi/Sorrento/Capri etc. Rómarvefurinn verður okkar leiðsögumaður í Róm.

- Guðmundur í Hafnarfirði.

Febrúar 2005
Rómarvefurinn blómstrar
Vefur Stofnunar Dante Alighieri sér ástæðu til þess að benda Ítalíuvinum á Rómarvefinn. Þar er á ferð rammíslenskur vefur til glöggvunar á staðháttum, matarmenningu og sögu Ítalíu, með sérstakri áherslu á höfuðborgina Róm. Gagnlegar upplýsingar fyrir ferðalanga og aðra áhugamenn eru settar fram með fallegum myndskreytingum, en tilgangurinn er að sögn aðstandenda „í stuttu máli sá að greiða götu þína að þeirri ilmandi, bragðgóðu og syngjandi fegurð sem Ítalía hefur að geyma”. Hönnuður Rómarvefsins og helsti textahöfundur er Kristinn Pétursson, í félagi við ýmsa fleiri. Á vefnum er ennfremur að finna vænt tenglasafn um sitthvað sem viðkemur ítalskri gestrisni, námi, menningu o.fl.

- www.dantealighieri.is

Júlí 2004
Vísað til vegar í Róm
Það hefur lengi staðið til að þakka ykkur fyrir frábært framtak - frábæran vef. Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

- Íslendingar í Róm.

Mars 2004
Leiðsögubiblía
Kristinn Pétursson heldur úti síðu sem er alveg ótrúlega vel gerð og þar má finna ítarlegar upplýsingar um nær allt er viðkemur Róm. Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

- Hlauparar.

Janúar 2004
Argasta snilld
Sælir og takk fyrir þetta, þessi vefur er argasta snilld!!!!!! Við félagarnir erum á leið til Rómar í menningar- og skoðunarferð og þessi vefur svarar öllu sem okkur vantar að vita og mun meira til. Takk kærlega.

- Sveinbjörn.

Nóvember 2003
Congratulazioni!
Má til með að lýsa hrifningu minni á vefnum! Þetta er svo sannarlega frábært framtak og engin smá vinna sem þarna liggur að baki.

- Margrét í Kópavogi.

Nóvember 2003
Rómarást
Erum að fara til Rómar eftir 5 klst. og erum mjög spennt. Okkur var bent á Rómarvefinn fyrir nokkrum dögum og höfum eytt síðustu kvöldum í að fræðast um Róm í gegnum hann. Okkur líst vel á vefinn og finnst okkur hann sérstaklega skemmtilegur og bera vott um Rómarást, léttleika og jákvæðni. Gangi ykkur vel!

- Gunna Ben.

Vefur sem hittir í mark!
„Einstaklega áhugaverður ..., ítarlegur ..., vel unninn, hagnýtur og hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ..., vefur sem hittir í mark.“

Þetta er vefur sem full ástæða er til að mæla með, hvort heldur sér til fróðleiks og yndisauka eða hreinlega til að undirbúa ferðalag til Rómar.“

- Úr vefrýni Guðrúnar Helgu Sigurðardóttur í 8. tölublaði Frjálsrar verslunar 2003. Lesa

Maí 2003
Óska ykkur til hamingju með þennan frábæra vef.

Október 2002
Flott framtak
Ég vildi endilega hrósa þér með þetta framtak. Það kom mér verulega á óvart að finna þennan vef þar sem að ég átti ekki von á því að það væri til slíkur vefur. Ég var búsett í Róm í 2 ár (með hléum) og á mína vini og minn maka ásamt "fjölskyldu" þar. Með baráttu og virðingarkveðjum.

- Nína.

September 2002
Fögnuður í Norðurmýri
Við eldri hjón hér í Norðurmýri fundum Rómarvefinn í kvöld og erum í fagnaðarástandi. Við sjáum ekki að það þurfi mikið fleiri vefi. Munum við orna okkur við þennan í framtíðinni.

September 2002
Complimenti! Mjög skemmtilegur vefur hjá þér og bara til hamingju með hann – frábært framtak.

September 2002
Mig langar til að hrósa framtakinu varðandi vefinn sem er afar fræðandi.

Apríl 2002
Buona sera!
Þessi vefur er alveg frábær, en væri nokkuð vitlaust að hafa eitthvað á honum um málið sjálft, ítölskuna? Ciao.

Febrúar 2002
… get ekki orða bundist. Þetta er flottur og nærandi vefur!


... og hvað finnst þér? Rómarvefnum þætti vænt um að heyra álit þitt á vefnum; hvað er gott, hvað vantar? - og það sem betra væri, að þú sendir honum hugleiðingu, grein eða pistil um eða varðandi Ítalíu.

Rómarvefurinn hefur verið á netinu frá vorinu 2001 og hafa þúsundir netverja spókað sig um á síðum hans.
 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband