Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Bertel Thorvaldsen (1770-1844) var danskur myndhöggvari af íslensku faðerni sem bjó lengi og starfaði í Róm.
Bertel sótti sér menntun í Listaakademíuna í Kaupmannahöfn á árunum 1781-93 hjá J. Wiedeweldt og N. Abildgaard. Thorvaldsen fór til Rómar 1797 og var búsettur þar til 1838, er hann fluttist til Danmerkur. Hann heimsótti Róm aftur 1841-42. Hann var tilnefndur heiðursprófessor við Listaakademíuna í Kaupmannahöfn 1805, prófessor við S. Luca akademíuna í Róm 1808 og forseti hennar 1825-28. Thorvaldsen mótaðist af hugmyndum nýklassíkurinnar þegar á skólaárum sínum hjá Abilgaard. Í Róm kynntist hann fornleifafræðingnum Georg Zoëga, sem fræddi hann ítarlega um höggmyndalist fornaldarinnar, en hún átti eftir að verða efniviður hans þaðan í frá.
Thorvaldsen sló í gegn með styttu sinni af Jason (1802-28), sem hann gerði eftir pöntun frá breska listaverkasafnaranum Thomas Hope og eftir fyrirmynd rómversk-grísku höggmyndarinnar Apollo frá Belvedere. Jasonarmyndin þótti ögra stöðu Canova, hins ókrýnda meistara nýklassíkurinnar í Róm.
LISTAMAÐURINN OG VERKIN Bertel Thorvaldsen á vinnustofu sinni í Karlottuborg. Málverk eftir Ferdinand Richardt (1819-1895).
Thorvaldsen varð á sínum tíma einn eftirsóttasti myndhöggvari álfunnar og fékk pantanir frá konungshirðum og aðalsfólki víðs vegar að. Mörg helstu verk Thorvaldsens sækja efnivið sinn og fyrirmyndir í grísk-rómverska goðafræði og kenningar Winkelmanns og Lessings um yfirburði grískrar klassískrar höggmyndalistar yfir aðra myndlist. Samkvæmt kenningum þeirra átti höggmyndin að veita hlutlausa fullnægju í fullkomnun formsins og hreinleika marmarans.
THORVALDSEN Sjálfsmynd listamannsins frá árinu 1839 þar sem hann hallar sér upp að höggmynd sinni Vonininni" frá 1818. Bronsafsteypa gefin Íslandi í tilefni þjóðhátíðarinnar 1874 og er nú í Hljómskála- garðinum. Mynd: RV
Þegar Thorvaldsen fluttist til Kaupmannahafnar 1838 var honum fagnað sem þjóðhetju. Thorvaldsen hafði þá gefið borginni listaverkasafn sitt gegn loforði um að byggt yrði safn yfir verkin. Byggingin var teiknuð af arkitektinum M.G.Bindesbøll. Árið 1839, eftir að Thorvaldsen var sestur að í Charlottenborg, gerði hann m.a. sjálfsmyndina (1839) þar sem hann hallar sér upp að mynd sinni Vonin" (frá 1818), en bronsafsteypa hennar var gefin Íslandi í tilefni þjóðhátíðarinnar 1874 og sett upp á Austurvelli. Hún var fyrsta útilistaverkið í eigu Íslendinga, og er nú í Hljómskálagarðinum. Thorvaldsen lést 1844 á leiksýningu í Konunglega leikhúsinu, og var grafinn í garði Thorvaldsensafnsins.
Heimildir: Vefur Listasafns Íslands, höfundar ekki getið: www.listasafn.is.
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.