Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Á heiði í óbyggðum Skotlands hafa þrír hópar norna komið saman. Þær lýsa galdramætti sínum hver fyrir annarri. Macbeth og Banquo mæta nornunum og spyrja þær spurninga.
Macbeth er ópera í fjórum þáttum eftir Giuseppe Verdi við texta Francesco Maria Piave, eftir sjónleik Williams Shakespeares. Óperan var fyrst frumsýnd í Pergolaleikhúsinu í Flórens 14. mars 1847, en endurskoðuð útgáfa hennar var frumsýnd í Théâtre-Lyrique í París 21. apríl 1865.
Söguþráðurinn Hér á eftir gefur að líta söguþráð óperunnar Macbeth. Til glöggvunar er vísað í heiti á aríum og dúettum innan sviga.
Fyrsti þáttur 1. atriði: Heiðin Á heiði í óbyggðum Skotlands hafa þrír hópar norna komið saman. Þær lýsa galdramætti sínum hver fyrir annarri. Macbeth og Banquo, hershöfðingjar í her Duncans Skotakonungs á heimleið úr sigursælli orrustu, mæta nornunum og spyrja þær spurninga. Nornirnar hylla Macbeth sem höfðingja í Cawdor, höfðingja í Glamis og verðandi konung yfir Skotlandi. Þær spá því einnig að Banquo verði forfaðir konunga sem ríki hver fram af öðrum. Nornirnar eru vart horfnar á braut þegar sendiboðar færa þær fréttir að höfðinginn í Cawdor hafi verið dæmdur til lífláts fyrir drottinssvik og Macbeth eigi að hljóta tign hans og nafnbót. Macbeth og Banquo eru furðu lostnir yfir því að upphaf spádómsins skuli hafi ræst og mjög hugsi.
2. atriði: Salur í kastala Macbeths Lafði Macbeth fær fréttirnar í bréfi frá eiginmanni sínum. Hún er haldin takmarkalausri metorðagirnd og ætlar að öðlast völd hvað sem það kostar (Nel di della vittoria .. Vieni! taffretta!). Þegar þjónn tjáir henni að Macbeth sé á leiðinni ásamt Duncan , sem hyggst gista kastala þeirra um nóttina, hugsar hún strax upp ráð til að myrða konunginn (Or tutti sorgete). Macbeth kemur. Hann hikar en fær ekki spornað við staðfastri ákvörðun konu sinnar. Framavon hans sjálfs fær hann loks til að fremja ódæðið. Upp frá því nagar samviskan hann, og hann óttast að hann geti aldrei framar sofið rólegur (Fatal mia donna). Lafði Macbeth, kaldrifjuð og miskunnarlaus, hefur enga samúð með honum í þessum raunum. Illir fyrirboðar valda Macduff og Banquo áhyggjum, og þeir fara því um morguninn að vekja konunginn. Þeir finna konunginn veginn og vekja alla hirðina til að segja tíðindin. Allir formæla hinum óþekkta morðingja, einnig Macbeth og kona hans (Schiudi, inferno, la bocca).
Annar þáttur 1. atriði: Herbergi í kastalanum Macbeth er orðinn konungur Skotlands. Sonur Duncans, Malcolm, er flúinn til Englands og hefur þannig styrkt þann grun að hann hafi gerst sekur um föðurmorð og fyrirgert rétti sínum til krúnunnar. Samt er Macbeth ekki öruggur í sessi. Hann man spádóm nornanna, að Banquo verði forfaðir konunga er ríki hver fram af öðrum. Macbeth og lafði Macbeth ákveða því að meira blóði skuli úthellt (La luce langue).
2. atriði: Garður nærri kastala Macbeths Að skipan Macbeths sitja morðingjar fyrir Banquo og syni hans Fleance (Come dal ciel precipita).
3. atriði: Virðulegur salur í kastalanum Mikil veisla og fögur er haldin við hirðina. Lafði Macbeth syngur drykkjuvísu (Si colmi il calice) og allir taka undir. Macbeth hefur rétt í þessu haft spurnir af morði Banquos og flótta Fleance en þykist undrandi á fjarveru Banquos. En þegar Macbeth er að setjast til borðs birtist vofa Banquos. Macbeth einn sér hana og er gripinn ofshræðslu. Hann hörfar, orð hans eru samhengislaus og ljóstra upp sekt hans. Lafði Macbeth tekst með erfiðismunum að koma fyrir hann vitinu. Hún heldur áfram að syngja drykkjuvísuna en blóði drifin vofa Banquos birtist Macbeth á ný og hann missir stjórn á sér. Hann ákveður að fara aftur til nornanna og spyrjast fyrir um framtíð sína. Macduff og hirðin öll fyllast ótta yfir ósjálfráðum og hræðilegum uppljóstrunum Macbeths.
Þriðji þáttur
Ólafur Kjartan Sigurðarson og Elín Ósk Óskarsdóttir í hlutverkum Macbeths og lafðinnar. Mynd af vef Ísl. óperunnar.
Dimmur hellir Nornirnar magna djöfullegan seið. Þær dansa. Macbeth kemur inn og biður þær að spyrja hin óþekktu öfl um framtíð hans. Þrír andar birtast hver á fætur öðrum. Sá fyrsti varar hann við Macduff, sá næsti segir að enginn maður af konu fæddur geti gert honum mein, og sá þriðji heitir honum frægð og sigursæld uns Birnamskógur rísi gegn honum. Macbeth er samt ekki ánægður. Hann spyr hvort afkomendur Banquos verði konungar eftir hans dag. Honum eru þá sýndir svipir átta konunga og síðastur fer Banquo sjálfur með spegil í hendi. Spádómarnir eru þannig staðfestir. Macbeth fellur í öngvit, og andar loftsins dansa í kringum hann. Þegar hann rankar við sér er lafði Macbeth hjá honum. Þau ákveða að ryðja úr vegi afkomendum Banquos og fjölskyldu Macduffs en Macduff er sjálfur flúinn til Englands (Ora di morte).
Fjórði þáttur 1. atriði: Eyðilegur staður á landamærum Skotlands og Englands Macduff hefur reist herbúðir á landamærum Skotlands, fyrir Skota sem flúið hafa þaðan og hrakist burt. Þeir harma örlög undirokaðs föðurlands síns og missi fjölskyldna sinna (Patria oppressa). Macduff syrgir konu sína og börn sem Macbeth hefur látið myrða (O figli, o figli miei .. Ah, la paterna mano). Malcolm birtist og fer fyrir enskum her. Saman halda þessar hersveitir til hallar Macbeths og dyljast bak við trjágreinar úr Birnamskógi.
2. atriði: Salur í kastala Macbeths Á meðan þessu fer fram er lafði Macbeth þjökuð af hugarangri og illum draumförum. Hirðmær hennar og læknir fylgjast með henni ganga í svefni um kastalann með kerti í hendi. Hún er á barmi sturlunar og lifir á ný morðin sem hún á sök á. Hún reynir árangurslaust að þvo ósýnilegt blóð af höndum sínum (Una macchia è qui tuttora).
3. atriði: Annað herbergi í kastalanum Macbeth, sem hefur verið yfirgefinn af flestum trúum fylgismönnum sínum, óttast að hann mæti nú brátt örlögum sínum, að spádómarnir fari að rætast (Pietà, rispetto, amore). Honum finnst lífið hafa glatað tilgangi sínum. Fregnir af dauða eiginkonu hans láta hann ósnortinn. Þegar hermenn segja honum að Birnamskógur sé lagður af stað veit hann að skammt muni að bíða endalokanna.
4. atriði: Slétta Þegar ensku hermennirnir og skosku flóttamennirnir nálgast kastalann varpa þeir af sér felubúnaðinum og draga sverð úr slíðrum. Macduff sem var ekki af konu alinn heldur ófullburða skorinn burt úr móður kviði skorar á Macbeth að berjast og drepur hann (Mal per me che maffidai). Allir fagna sigri og hylla Malcolm, réttborinn ríkisarfa og nýjan konung.
Samkvæmt ítalskri hefð hrópa óperugestir BRAVO þegar þeir fagna karlsöngvara. Þeir hrópa síðan BRAVA þegar söngkonu er fagnað. Þegar fagna á karli og konu, tveimur körlum eða kór þykir BRAVI viðeigandi upphrópun. Þegar konurnar eru tvær eða fleiri er hins vegar hrópað BRAVE.
Óperan Macbeth eftir Verdi var frumsýnd í Íslensku Óperunni 1. febrúar 2003. Hljómsveitarstjóri Petri Sakari, leikstjóri Jamie Hayes. Með helstu hlutverk Ólafur Kjartan Sigurðarson, Elín Ósk Óskarsdóttir, Guðjón Óskarsson, Hulda Björk Garðarsdóttir, Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Snorri Wium.
Texti fenginn af vef Íslensku óperunnar, www.opera.is í febrúar 2003.
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.