Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
MÓNA LÍSA Þetta litla portrett málaði Leónardó árið 1503. Nú geymt í Louvre í París. Stærð 77 x 53 sm.
Leonardo da Vinci (1452-1519) er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
Á þeim tíma var algengt að listamenn væru í læri hjá meistara og var Leónardó þar engin undantekning á. Var hann í læri hjá þekktum málara og myndhöggvara, Andrea del Verrocchio. Leónardó var mjög hæfileikaríkur nemandi. Hann var svo duglegur að seinni tíma menn hafa kallað hann meistara. Forvitni hans og þörf fyrir að skilja hlutina leiddu hann inn á ýmis svið. Auk þess að vera málari var hann arkitekt, líffærafræðingur, myndhöggvari, verkfræðingur, eðlisfræðingur og stærðfræðingur.
Leónardó frá Vinci lagði mikla áherslu á að rannsaka fólk. Hann var einn af þeim fyrstu sem þekkti vel til byggingar mannslíkamans. Hann aflaði sér þeirrar þekkingar með því að kryfja lík. Áhugi fyrir sérkennum einstaklingsins einkenndi endurreisnartímabilið.
SÍÐASTA KVÖLDMÁLTÍÐIN Freska máluð á vegg í borðsal munkanna í Santa Maria delle Grazie klaustrinu nálægt Mílanó á árunum 1495-98. Árið 1980 var ráðist í viðamiklar endurbætur á myndverkinu sem lauk ekki fyrr en í maí 1999. Takið eftir dyrunum neðst fyrir miðju myndarinnar. Stærð 4,6 * 8,8 m. <STÆKKA>
Þó að Leónardó sé þekktastur fyrir málverk sín þá eru þau aðeins lítill hluti þess sem hann tók sér fyrir hendur á lífsleiðinni. Hann gerði líka vafasamar tæknilegar tilraunir. Síðasta kvöldmáltíðin (1495 - 98) sem er máluð á klausturvegg í Mílanó var til dæmis næstum horfin því hann var að gera tilraun með nýja aðferð við að undirbúa vegginn fyrir málun.
Móna Lísa er líklega frægasta andlitsmynd listasögunnar. Þetta verk hafði sérstaka þýðingu fyrir Leónardó því hann flutti það með sér hvert sem hann fór. Leónardó dó í Frakklandi og þess vegna hefur þetta fræga verk verið geymt þar.
EINN AF YÐUR MUN SVÍKJA MIG Jesús Kristur í fresku Leónardós sem lokið var við að endurgera árið 1999.
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.