Langhlauparafélagið hætti formlegri starfsemi 2005.

Fyrrum félagar LHF fóru ýmist að æfa með Laugaskokki eða prófessorahópnum sem hleypur frá Vesturbæjarlaug.

Tékkaðu á þessu!

Langhlauparafélagið
Félagsstarf
Deildir LHF
Greinar
> Annáll LHF 2003
> Hrökkállinn 2003
> Aðalfundur 2003
> Fréttir
> Hvað kostar km
> Viðtal við Rannveigu
Hlaupasögur
Leiðir
Myndir
Tenglar
Um vefinn

Fótaaðgerðastofa Guðrúnar
 
L a n g h l a u p a r a f é l a g i ð
Hagsýnir hlaupa heilt!
Eftir Kristin Pétursson

Reykjavíkurmaraþon. Þennan hátíðardag íslenskra hlaupara er boðið upp á nokkrar mismunandi vegalengdir í hlaupum; allt frá 3ja km skemmtiskokki upp í heilt maraþon - 42 km og nokkuð rúmlega það.

Þátttaka í hlaupunum kostar sitt, enda fær hver hlaupari stuttermabol og þátttökupening til eignar, auk svaladrykkja á leiðinni. En gjaldið er mismunandi eftir vegalengd og þá er kannski ekki úr vegi að reikna út kílómetragjald hverrar vegalengdar og finna þar með út hagstæðasta hlaupið - bestu kaupin í hlaupinu.

Stefnir þú á Reykjavíkurmaraþon, en veist ekki alveg hvaða vegalengd þú átt að hlaupa? Engar áhyggur, ekki nokkrar - hér er svarið!
Við byrjum á skammhlaupunum. 3ja og 7 km skemmtiskokkin kosta kr. 1.200. 10 km kosta 1500 kall og hálfmaraþonið 2.000 kr. Maraþon kostar svo 2.500 kr. Þetta gerir:
    3 km: 400 kr. á km
    7 km: 171 kr. á km
    10 km: 150 kr. á km
    21 km: 95 kr. á km
    42 km: 60 kr. á km
Það er þá morgunljóst í hvaða hlaupi maður gerir bestu kaupin; maður getur hlaupið maraþon fyrir 60 kall á kílómetrann á móti allt að 400 krónum í 3ja km skemmtiskokkinu! En svo má nú líka snúa þessu við og spyrja: í hvaða hlaupi kemst ég af með hvað fæsta km fyrir bol og þátttökupening? Nei, við skulum ekki hlaupa á okkur: Hagsýnir hlaupa heilt maraþon!

Og svona í lokin. Það kemur kannski ekki á óvart að stystu leiðirnar séu dýrastar, því þær eru jú nefndar skemmtiskokk og bera því trúlega skemmtanaskatt og útheimta sérstkaka löggæslu og nærveru sýslumanns - og björgunarsveita í viðbragðsstöðu. Það ber því augljóslega að varast þau hlaupin. Þeim sem ætla í Laugaveginn á næsta ári er hins vegar hollast að fara að leggja fyrir, því það hlaup kostar litlar 13.000 kr. Sagt og skrifað.

Að gefnu tilefni er það svo áréttað að langhlauparar fá ekki langermaboli heldur stutterma.


> Greinin miðast við gjaldskrá RM 2003. Vefur Reykjavíkurmaraþons er á
http://web2.toto.is/rmar/default_i.asp.