Langhlauparafélagið hætti formlegri starfsemi 2005.

Fyrrum félagar LHF fóru ýmist að æfa með Laugaskokki eða prófessorahópnum sem hleypur frá Vesturbæjarlaug.

Tékkaðu á þessu!

Langhlauparafélagið
Félagsstarf
Deildir LHF
Greinar
> Annáll LHF 2003
> Hrökkállinn 2003
> Aðalfundur 2003
> Fréttir
> Hvað kostar km
> Viðtal við Rannveigu
Hlaupasögur
Leiðir
Myndir
Tenglar
Um vefinn

Fótaaðgerðastofa Guðrúnar
 
L a n g h l a u p a r a f é l a g i ð
LHFRÉTTIR

Miðvikudagur, 9. febrúar 2005
ÖSKUDAGUR Já, já, það er víst komið nýtt ár. Pétur Örn var svo duglegur að setja saman litla ferðasögu úr hópferð LHF-félaga í margmennishlaup í Amsterdammi í Niðurlandi í október síðastliðnum en vefstjóri svo óduglegur að koma skrifunum ekki inn á vefinn fyrr en nú. Og hana nú. Lesist hér

Miðvikudagur, 20. október 2004
STELPURNAR OG STRÁKARNIR OKKAR Nú hafa Amsterdamfarar snúið heim og flestir með sæta persónulega sigra úr maraþoni og hálfu í farteskinu. Sérlega eftirtektarverð er frammistaða Þorláks okkar Jónssonar sem varð nr. 78 af 4.491 keppanda. Árangur Þorláks er sá besti sem náðst hefur í maraþonhlaupi íslenskra á árinu.

Föstudagur, 3. september 2004
SELFOSS - AMSTERDAM Heil og sæl, vil minna á Brúarhlaupið á Selfossi núna á laugardaginn, 4. sept. Selfosshlaupið er ágætis upphitun fyrir komandi maraþonhlaup í Amsterdam. Núna eru 43 dagar í það hlaup og því um að gera að haga æfingum í samræmi við það. (Sjá www.amsterdammarathon.nl) Að sjálfsögðu ætla flestir í hópnum að fara í maraþonið í Amsterdam en ljóst að nokkrir munu fara í styttri vegalengdirnar.

Smá um maraþon:
www.bbc.co.uk/science/hottopics/marathon
http://www.soyouwanna.com/site/syws/marathon
http://www.runningplanet.com
http://www.deiglan.com

kveðja,
Pétur Örn.

EFTIR HLAUP Rúnar, Birgir og Birkir bera saman bækur eftir hlaup.
Mánudagur, 23. ágúst 2004
GÓÐIR TÍMAR Í FRÁBÆRU HLAUPI Reykjavíkurmaraþon var þreytt í 21. skipti í mikilli veðurblíðu árla þess dags sem núorðið er helsti hátíðisdagur Íslendinga, menningarnótt. Tæpar fjórar þúsundir karla og kvenna, unglinga og barna hlupu um sólbakaðaðar götur borgarinnar, vestur á Nes og austur í Voga. Þar á meðal allmargir LHF-félagar sem stóðu sig allir vel.

Haukur hljóp sitt fyrsta maraþon, Gerður sigraði í hálfu maraþoni kvenna, en Þorlákur, Birgir og Birkir voru framarlega í flokki karla. Í 10 km vann Jóhanna það persónulega afrek að sigra í sínum flokki með því að hlaupa undir 40 mín. í fyrsta skipti. Rúnar var fjórði í karla 10 km og Kristinn var og þar á góðum tíma (lesist: gaf sér góðan tíma). Friðrik kláraði maraþon og var ekkert að flýta sér.

Mánudagur, 12. janúar 2004
ANNÁLAR Nú árið er liðið 2003 og margs að minnast úr sögu félagsins frá því árinu: Margir hlupu vel, færri á sig, félagið efldist og breytti líka um nafn, haldin voru alvöru partí, félagið eignaðist málgagn og færa skrifara, deilur risu og risar deildu og allt í góðu. Mikið var hlaupið og hlaupið var gott.

> Lestu annál félagsins fyrir árið 2003 eftir Þorlák okkar Jónsson.
> Lestu Hrökkálinn 2004 - ógleymanlegur lestur við upphaf nýs árs þegar manni dettur allra síst í hug að muna.
> Skoðaðu myndir frá Gamlárshlaupinu 2003.


Eldri fréttir ...