Langhlauparafélagið hætti formlegri starfsemi 2005.

Fyrrum félagar LHF fóru ýmist að æfa með Laugaskokki eða prófessorahópnum sem hleypur frá Vesturbæjarlaug.

Tékkaðu á þessu!

Langhlauparafélagið
Félagsstarf
> Annáll LHF 2003
> Hrökkállinn 2003
> Aðalfundur 2003
> Hlaupin framundan
> Bestu tímar LHF félaga
Deildir LHF
Greinar
Hlaupasögur
Leiðir
Myndir
Tenglar
Um vefinn

Fótaaðgerðastofa Guðrúnar
 
L a n g h l a u p a r a f é l a g i ð
Langhlauparafélagið

LHF félagar sem mættir voru á æfingu í Vesturbæjarlaugina í janúarlok 2004. Mynd: KP. <STÆKKA>
Langhlauparafélagið er frekar óformlegur félagsskapur áhugahlaupara af öllum stærðum og gerðum sem gera sín hlaup út frá Reykjavík, Akureyri, Kaupmannahöfn og víðar. LHF Reykjavík er fjölmennasta deildin, æfir þrisvar í viku, þ.e. mánudaga og fimmtudaga kl. 17.45 og laugardaga kl. 10. Hlauparar í LHF Rvík eru um 30 talsins og öllum velkomið að taka þátt.

Sagan
Upphaf Langhlauparafélagsins má rekja allt aftur til sumarsins 1997 er skokkfélagið Þokki var stofnað fyrir korthafa líkamsræktarstöðvarinnar Þokkabótar í Vesturbæ. Hlaupasysturnar Martha og Bryndís Ernstdætur veittu hópnum forstöðu í upphafi (sumrin 1997 og 1998) en sumarið 1999 tók Oddgeir Ottesen við hópnum. Upphaflega var starfsemi hópsins aðeins á sumrin en frá haustinu 1999 fjölgaði þeim sem stunduðu hlaup í Þokkabót það mikið að ákveðið var að starfrækja hlaupahópinn allan ársins hring. Í júnímánuði 2000 byrjaði hlaupahópurinn að hlaupa frá Vesturbæjarlaug og hefur gert út þaðan síðan. Oddgeir stýrði hópnum fram til sumarsins 2001, er hann hélt af landi brott til frekara náms, og tók þá við Þorlákur Jónsson í samvinnu við fleiri.

Margir metnaðarfullir einstaklingar hafa tekið miklum framförum frá því þeir hófu að æfa langhlaup með hlaupahópnum og vakið mikla athygli fyrir frábæran árangur í þeim hlaupum sem þeir hafa tekið þátt í. Þessu til staðfestingar má nefna hlauparana Rannveigu Oddsdóttur og Þorlák Jónsson sem hafa á fáum árum komist í hóp fremstu hlaupara landsins.

En þrátt fyrir góðan árangur í keppnum er Langhlauparafélagið alls ekki hugsað aðeins fyrir keppnismenn í hlaupum. Stefnan er að vera með breiðan hóp fólks sem vill hlaupa í keppnum og eins fyrir þá sem vilja hlaupa sér til ánægju og yndisauka. Lagt er upp úr því að hafa mismunandi þjálfunarkerfi, þannig að allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi miðað við líkamsástand og markmið hvers og eins.

Ef þú hefur áhuga á hlaupum, hreyfingu utandyra eða vilt æfa með keppni í huga þá er Langhlauparafélagið eitthvað sem þú mátt ekki láta fram hjá þér fara.

Pétur Örn Sigurðsson.

> Kynntu þér líka æfingatíma LHF, lestu nánar um deildirnar og svo annál og Hrökkál félagsins fyrir árið 2003.