E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  RÓMVERSK-KAÞÓLSKA KIRKJAN
Kaþólsk trú og lútersk
  Hvað greinir kaþólska trú frá lúterskri?
spyr Jóhann Hilmarsson á Vísindavefnum
og Haukur Már Helgason svarar hér.

Eftir Hauk Má Helgason

Túlka má muninn á kaþólskum sið og lútherskum svo að trú hins lútherska sé huglæg – ósýnileg – og undir honum einum komin en trú kaþólskra sé að nokkru hlutlæg – hún sést – er fólgin í réttum verkum.

(Trúaður lútherskur maður vinnur þó rétt verk, en hann dæmist ekki af þeim og trú hans ræðst ekki af þeim.) Þetta er samofið þeim greinarmun kenninganna að lútherskir vísa aðeins til Biblíunnar sem kennivalds en kaþólskir til Biblíunnar og erfikenningarinnar, en erfikenningunni fylgja nákvæmari leiðbeiningar en finnast í Biblíunni um réttar gjörðir og framkvæmd dyggða.

Reykhóla-María með Jesúbarninu sínu. Mynd fengin af vef kaþólsku kirkjunnar á Íslandi.
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar og Jesú Krists. Hvort sá sem gengur til altaris eða veitir sakramentið trúir á athöfnina er málinu óviðkomandi í kaþólskum sið. Altarisganga lútherskra hefur ekkert gildi sem slík, heldur aðeins ef trúaður maður tekur þátt í henni. (Þá breytist raunar brauðið í líkama Krists en hvernig það gerist er mönnum hulið) Trúin kemur á undan athöfninni, meðal lútherskra, en er að nokkru fólgin í athöfninni meðal kaþólskra.

Samkvæmt hefð er í þessu svari talað jöfnum höndum um kaþólska og rómversk-kaþólska kirkju þegar átt er við þá kirkju sem heyrir undir páfann í Róm, enda þótt kaþólsk þýði almenn og fleiri söfnuðir vilji nefna sig kaþólska.

Á 16. öld er Marteinn Lúther meðal þeirra manna sem berjast fyrir umbótum innan hinnar rómversk-kaþólsku kirkju sem þá var stærsta og öflugasta valdastofnun Evrópu. Á þessum tíma fóru miklar sögur af spillingu og bílífi innan páfadóms og mörgum kirkjunnar mönnum þótti nóg um og vildu gera þar bragarbót. En Lúther vildi ekki aðeins uppræta spillingu heldur sagði og stóran hluta af kenningu kirkjunnar rangan.

Kirkjan hafði kennivald í tvennu lagi, Biblíuna og erfikenninguna eða hefðina sem biskupinn í Róm, páfinn, áleit sig útleggja réttast. Á tíma Lúthers var þetta að vísu deiluefni innan kirkjunnar en frá 1870 hefur páfinn verið skilgreindur sem óskeikull meðal kaþólskra. Lúther vildi að aðeins væri vísað til eins kennivalds um trúna, Biblíunnar.

Vald páfans innan kaþólskrar kirkju er skýrt með vísan til þess er Jesús útnefnir Símon Pétur stofnmann kirkju sinnar:
Þú ert Pétur, kletturinn, og á þessum kletti mun ég byggja kirkju mína, og máttur heljar mun ekki á henni sigrast. Ég mun fá þér lykla himnaríkis, og hvað sem þú bindur á jörðu, mun bundið á himnum, og hvað sem þú leysir á jörðu, mun leyst á himnum. (Mt. 16;18—19)
Kaþólska kirkjan lítur svo á að þetta vald Símonar Péturs erfist með páfadæminu.

Lúther hafnaði þessari útleggingu. Áður hafði kirkjan klofnað í grísku rétttrúnaðarkirkjuna og þá rómversk-kaþólsku (1054). Rétttrúnaðarkirkjan leit svo á að allir biskupar væru erfingjar að valdi Péturs. Þar er því samkunda biskupa æðsti dómur. Lúther túlkaði þennan texta Mattheusarguðspjalls svo að Pétur væri til dæmis um sannkristinn mann en Kristur væri kletturinn – öllum mönnum verður þá fyrir trú sína jafnfært að nálgast lykla himnaríkis.

Lúther lagði um leið fram nýja túlkun á Biblíunni. Kenning hans um réttlætingu af trú vék frá opinberri túlkunarhefð kirkjuyfirvalda. Vel þekkt er að menn gátu á tíma Lúthers keypt sér aflausn synda innan kirkjunnar – stytt sér gegn gjaldi biðina í hreinsunareldinum á leið til Himnaríkis. Kaþólskir líta svo á að synd sé fólgin í verknaði – hún sé drýgð með rangri breytni og bæta megi fyrir hana með réttri breytni. Lúther neitar þessu, segir syndina ekki fólgna í einstökum verkum og því verði aldrei bætt fyrir syndir með góðum verkum, hvorki eigin né annarra. Syndin komi á undan verknaðinum, liggi í hjarta mannsins og verði aðeins leiðrétt með trú. Maðurinn réttlætist aðeins með trú sinni. Góð verk fylgi trúnni sjálfkrafa, en þó að maður geri öllum stundum aðeins það sem rétt og gott er sé hann engan veginn hólpinn, því að það gerir hann ekki trúaðan.

Innan kaþólskrar kirkju geta menn tryggt sér dvöl í Himnaríki með réttum gjörðum. Meðal lútherskra eru þeir aðeins hólpnir sem trúa, samkvæmt kenningunni um réttlætingu af trú, en aðrir eru upp á náð og miskunn Guðs komnir. (Mt. 19;25–26: „[Lærisveinarnir sögðu:] „Hver getur þá orðið hólpinn?" Jesús horfði á þá og sagði: „Fyrir mönnum eru engin ráð til þessa, en Guð megnar allt.")

Þegar erfikenningunni er hafnað, Biblían stendur ein eftir sem orð Guðs, og engar leiðir aðrar taldar manninum til bjargar en trúin sem býr innra með manninum en ekki í gjörðum hans, þá leiðir af því að mörgu öðru úr kaþólskum sið er kastað fyrir róða. Lútherskir taka til dæmis enga menn í dýrlingatölu, telja það stangast á við fyrsta boðorðið (5. Mósebók 5;8: „Þú skalt ekki hafa aðra guði en mig."). Kaþólskir segja á móti að dýrlingarnir séu þeir menn sem taka megi til fyrirmyndar um hvernig nálgast skuli Krist. Þeir varpi á hann engum skugga en lýsi leiðina til hans.

Sakramenti er verknaður sem látinn er tákna nærveru Krists, nokkuð sem hann er sagður hafa látið eftir sig á jörðinni til að auðvelda mönnum að nálgast sig. Sakramenti kaþólskra eru sjö en lútherskir telja sig aðeins finna tveimur þeirra stað í máli Jesú Krists. Skírnin og altarissakramentið eru þau tvö sem bæði kaþólskir og lútherskir iðka. Hin sérkaþólsku eru: Ferming, hjónavígsla, prestsvígsla, sakramenti sjúkra og sakramenti iðrunar (skriftir). Lútheri fannst sjálfum flest sakramenti kaþólskra góðir siðir og skriftir tíðkuðust lengi innan lútherskrar kirkju. En hann neitaði að telja athafnirnar til þeirra sakramenta sem Kristur fyrirlagði.

Sakramenti eru óafturkallanleg fyrir Guði. Því verður hjónavígsla ekki afturkölluð í kaþólskri kirkju, með öðrum orðum hjónaskilnaðir eru bannaðir. Þeir eru hins vegar heimilaðir í lútherskum sið. Munurinn er þó að vísu ekki alveg svo skýr; ef sýnt þykir að heit hafi ekki verið gefið af heilindum, við kaþólska hjónavígslu, má ógilda vígsluna.

Þeir menn eru til, samkvæmt kaþólskum, sem eru syndugir en eru þó ekki allar bjargir bannaðar; þeir munu eiga kvalafulla vist í hreinsunareldinum til að hreinsast af syndum sínum eftir dauðann, en fá þar eftir að lifa með Guði. Lútherskir finna enga stoð í ritningunni fyrir hugmyndunum um hreinsunareldinn og hafna þeim því.

Ýmsir aðrir siðir sem fylgja hinni kaþólsku kirkju vegna hefðarinnar hafa verið niður lagðir meðal lútherskra, til dæmis að konur fái ekki gegnt prestsembætti.

Margir guðfræðingar hafa starfað í langri sögu kaþólsku kirkjunnar og greint á um margt. Sama má segja um hinn lútherska söfnuð. Þannig eru til margar misjafnar útleggingar, ekki aðeins á Biblíunni, heldur og á Biblíuskilningi Lúthers. Það sem hér fór á undan er vonandi nokkuð sem flestir útleggjendur myndu þó fallast á.


Við samningu þessa svars var haft sérstakt samráð
við Sigurjón Árna Eyjólfsson og sr. Hjalta Þorkelsson
og er þeim hér með þökkuð aðstoðin.

Heimildir:
Biblían. Hið íslenska biblíufélag, 1981.
Sigurjón Árni Eyjólfsson; Guðfræði Marteins Lúthers.
Hið íslenska bókmenntafélag, 2000.
Vefur kaþólsku kirkjunnar á Íslandi
Britannica.com
Haukur Már Helgason, 
heimspekinemi og starfsmaður Vísindavefjarins.

Ath. að ritstjóri hefur breytt titli greinarinnar. Myndin af Kristskirkju í Landakoti er fengin af vef Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi.
 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband