E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  RÓMVERSK-KAÞÓLSKA KIRKJAN
Páfinn
  Páfi er höfuð Rómversk kaþólsku kirkjunnar, hæstráðandi Vatíkansríkisins, eftirmaður Péturs postula og því staðgengill Krists á jörðu.

Páfinn, eða il papa eins og hann er kallaður, er höfuð Rómversk kaþólsku kirkjunnar og hæstráðandi í Páfagarði. Páfi er einnig biskup Rómar með aðsetur í Jóhannesarkirkju í Lateran (San Giovanni in Laterano), dómkirkju borgarinnar. Páfi býr í Vatíkaninu og hefur um sig svissneska varðmennn sem enn klæðast búningum frá því Júlíus II. páfi stofnaði til málaliðsins snemma á 16. öld. Páfinn er kjörinn af samkundu kardínála sem fundar í Sixtínsku kapellunni.

Þú ert Pétur, kletturinn, og á þessum kletti mun ég byggja kirkju mína, og máttur heljar mun ekki á henni sigrast. Ég mun fá þér lykla himnaríkis, og hvað sem þú bindur á jörðu, mun bundið á himnum, og hvað sem þú leysir á jörðu, mun leyst á himnum.

- Jesús við Símon Pétur
í Mt. 16;18-19.


Frá frumkristni hefur biskupinn í Róm verið álitinn æðstur biskupa kirkjunnar - æðsti prestur, pontifex maximus, það er, páfinn í Róm; borginni þar sem erkipostularnir Pétur og Páll dóu fyrir trú sína á Krist.

Jóhannes Páll páfi II.
Giovanni Paolo heitir hann upp á ítölsku, en er pólskur að kyni og skírður Karol Vojtyla. Hann er fyrsti innflutti páfinn frá því snemma á 16. öld, en þegar hann var kjörinn 16. október 1978 höfðu páfarnir verið ítalskir í 455 ár. Jóhannes Páll ríkti lengur í páfagarði en nokkur annar páfi á öldinni sem leið og er nú orðinn tveggja alda páfi. Honum var sýnt banatilræði 13. maí 1981 á Péturstorginu og er það mál enn ekki til lykta leitt á Ítalíu hvort tilræðismaðurinn hafi verið einn að verki eða sendur af leyniþjónustum erlendra ríkja. Páfi hefur hitt tilræðismann sinn og fyrirgefið honum. Almennt er viðurkennt að Jóhannes Páll hafi lagt töluvert að mörkum til frelsis og friðar í heiminum. Er talið að með stuðningi sínum við verkalýðshreyfinguna Samstöðu í föðurlandi sínu Póllandi (snemma á 9. áratugi síðustu aldar) hafi hann átt ríkan þátt í falli alræðisstjórnar Kommúnista þar í landi, sem síðan hafði óhjákvæmilega áhrif á frelsisbyltinguna í Austur-Evrópu í lok áratugarins. En páfi þykir íhaldsamur, sér í lagi í siðferðis- og siðgæðismálum.

Þeim sem hafa velt fyrir sér nöfnum páfanna skal það sagt að nýkjörinn páfi tekur upp nafn þess páfa sem hann hefur mestar mætur á.

Páfi í Avignon
14. öldin var tími mikilla væringa og flokkadrátta innan páfagarðs sem utan og svo fór að stóll páfa var fluttur til Avignon í Frakklandi. Þar sátu sjö franskir páfar næstu sjötíu árin eða svo, 1309 – 77. Er þessi tími stundum kallaður Babýlonútlegðin, eftir sjötíu ára herleiðingu Gyðinga til Babýloníu á 6. öld f.Kr. Valdabarátta og stríð urðu einnig til þess að menn gátu ekki komið sér saman um skipun páfa. Voru því skipaðir andpáfar hinum „réttkjörnu“ páfum til höfuðs – og svo gagnandpáfar. Fyrsti andpáfi aldarinnar var skipaður 1328, en árin 1378 – 1415 voru fjórir andpáfar skipaðir – tveir andpáfar og tveir gagnandpáfar.


Lestu æviágrip Jóhannesar Páls II. hér í Rómarvefnum.

 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband