Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Tilgangur Rómarvefjarins er í stuttu máli sá að greiða götu þína að þeirri ilmandi, bragðgóðu og syngjandi fegurð sem Ítalía hefur að geyma!
Rómarvefurinn er ferða-, menningar- og söguvefur um allt sem tengist Ítalíu, landi og þjóð. Rómarvefurinn er fyrir alla þá sem hafa áhuga á að kynna sér sögu og menningu Rómar og Ítalíu á aðgengilegan hátt, hvort sem netverjar eru á spásseríi um borgina fögru, á leiðinni til Ítalíu, eða bara heima að fræðast. Rómarvefurinn er eini vefur sinnar tegundar á Íslandi.
Rómarvefurinn hefur verið á netinu síðan vorið 2001 og samanstendur af hátt í 200 vefsíðum stútfullum af alls konar efni sem þó á einhvern hátt tengist Ítalíu.
Hönnuður Rómarvefjarins og helsti höfundur er Kristinn Pétursson, vefhönnuður og textasmiður, en fjöldi annarra höfunda hefur lagt vefnum til efni.
Rómarvefurinn er vel sóttur af fólki á öllum aldri, ekki síst þeim sem eru að hugleiða ferð til Ítalíu. Vefurinn er einnig töluvert notaður af nemendum grunn- og framhaldsskóla og svo þeim sem hafa áhuga á sögu Rómar. Rómarvefurinn hefur fengið góða umsögn, jafnt hjá almenningi sem fagmönnum, og er t.a.m. skilgreindur sem námsefni á vef Menntamálaráðuneytisins, Menntagátt.is.
Hjálpaðu okkur við að gera Rómarvefinn að gagnlegum og skemmtilegum vef með því að segja okkur hvað þér finnst um vefinn og senda okkur efni á netfangið kristinn@romarvefurinn.is eða senda okkur fyrirspurn beint héðan af vefnum.
Frá ritstjóra Höfundur og vefari Rómar- vefjarins vísar til vegar í Róm og reifar tilgang og markmið vefjarins.
Um höfund Hér er stuttlega sagt frá höfundi Rómarvefjarins og tilurð þess að hann tók að spinna vefinn.
Höfundar Auk ritstjóra hafa nokkrir höfundar aðrir hafa lagt til efni í vefinn.
Vertu dagskárgerðarmaður! Rómarvefurinn óskar eftir dagskárgerðarmönnum að kvikmyndum og hljóðefni í vefinn.
Merki Rómarvefjarins Þeir vefstjórar sem vilja vísa í Rómarvefinn geta nálgast merki og bora hér.
Málstefna Rómarvefurinn fjallar um menningu og sögu Ítalíu á íslensku eins og málhefðin býður.
Rómarspjall Í Rómarspjalli er reifað það nýjasta í vefnum og hvað annað sem vefstjóra liggur á hjarta.
Tækniupplýsingar Upplýsingar um hvernig hægt er að ná í ókeypis spilara til að horfa á kvikmyndir í Rómarvefnum og hlusta á tónlist eða hljóð.
SAGT UM RÓMARVEFINN
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar, því af þeim vefum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm
Congratulazioni! Má til með að lýsa hrifningu minni á vefnum! Þetta er svo sannarlega frábært framtak og engin smá vinna sem þarna liggur að baki.
Erum að fara til Rómar eftir 5 klst. og erum mjög spennt. Okkur var bent á Rómarvefinn fyrir nokkrum dögum og höfum eytt síðustu kvöldum í að fræðast um Róm í gegnum hann. Okkur líst vel á vefinn og finnst okkur hann sérstaklega skemmtilegur og bera vott um Rómarást, léttleika og jákvæðni. Gangi ykkur vel!
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.