Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Ekki er að vita hvort það hafi verið með ráðum gert að nefna fyrsta mánuð ársins eftir Janusi, guði hliða og dyra, upphafs og endis, en hann hefur tvö andlit, að framan og á hnakka, og sér því fram og aftur; við áramót er litið yfir liðið ár, en jafnframt horft fram á veginn. Meira
LEIKVANGAR
Í fornu Róm var mikið um blóðuga kappleiki og baráttu manna og dýra upp á líf og dauða. Rómverjar reistu meiriháttar leikhús og leikvanga til þess arna og standa sumir enn; þeir elstu eiga aldur sinn að rekja allt aftur til lýðveldistímans, til 3. og 4. aldar f.Kr. Meira
STÖÐ 2 SÝNIR SJÓNVARPSÞÆTTI UM RÓM
Árið er 52 fyrir Kristsburð. Fjórum öldum eftir lýðveldis- stofnun er Rómaborg auðugasta borg heims, alþjóðleg stórborg með um eina milljón íbúa og suðupottur rísandi heimsveldis.
Lýðveldið byggðist á valddreifingu og mikilli samkeppni manna í millum þannig að engum einum manni leyfðist að ná alræðisvaldi. Nú er hins vegar svo komið Rómarsögu að hriktir í stoðum lýðveldisins vegna spillingar og hóglífis valdastéttarinnar. Stéttin sú er orðin svo fram úr hófi auðug að leitt hefur til hnignunar hinna gömlu gilda aga og félagslegrar einingar. Stéttirnar takast á, laga- og stjórnarstofnanir ríkisins hafa veikst og völd og áhrif hafa í auknum mæli færst yfir til hersins.
Eftir átta ára stríð hefur Gæjus Júlíus Sesar gersigrað Galla og snúið aftur til Rómar. Hann hefur með sér legíónur af stríðsreyndum og hliðhollum hermönnum, stríðsgóss mikið og áætlanir um róttækar þjóðfélagslegar breytingar. Aðallinn er óttasleginn og hótar honum lögsóknum vegna stríðsglæpa komi hann til Rómar. Þræðir valdajafnvægisins liggja hjá öldungaráðinu og Pompejusi mikla, vini Sesars, meðstjórnanda og fræðara.
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.