Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Péturskirkjan
500 ára
Liðnar eru fimm aldir síðan hafist var
handa við að byggja Péturskirkjuna í
Róm. Bygging sú gekk ekki þrautarlaust;
kirkjan klofnaði, Róm var eyðilögð
af þýskum innrásarher, en 120 árum
eftir að Júlíus II. páfi lagði
hornstein nýju basilíkunnar var hún
tilbúin svona nokkurn veginn eins og við þekkum
hana þetta fimm hundruð árum síðar.
Páfinn er höfuð
Rómversk kaþólsku kirkjunnar
og hæstráðandi í Páfagarði.
Páfi er einnig biskup Rómar með
aðsetur í Jóhannesarkirkju í
Lateran, dómkirkju borgarinnar.
[Í]...pápisku
gefast svo margar maríur sem borgir, og
eru sumar kendar við blóm, aðrar
við kletta, en aðrar við heilsubrunn,
nokkrar við sæti meyarinnar, lögunina
á Jesúbútnum eða litinn
á heimpu hennar.
- Halldór Laxness
Fyrstu fimm aldir
kristni á Íslandi
og rúmlega það
lá Róm næst allra borga
Páfagarður hefur búið til nýtt
netfang fyrir Benedikt XIV páfa. Páfagarður
hefur ekki upplýst hve marga tölvupósta
páfi hefur fengið, en ef taka á mið
af reynslu Jóhannesar Páls páfa II
mun pósthólf Benedikts fljótt fyllast
af bænum, vandamálum og öðrum erindum.
Að sögn bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar
CNN var netvæði Páfagarðs breytt
í dag þannig að þegar netverjar
smella á tengilinn Kveðjur til hins heilaga
föður fara þeir inn á svæði
þar sem nýtt netfang páfa kemur fram.
Á ensku er netfangið: benedictxvi@vatican.va.
Á ítölsku er það benedettoxvi@vatican.va,
á spænsku benedictoxvi@)vatican.va, á
frönsku benoitxvi@vatican.va, á þýsku
benediktxvi@vatican.va, og á portúgölsku
bentoxvi@vatican.va.
Þegar nýr páfi var kjörinn á
þriðjudag kepptust margir við að reyna
að tryggja sér netföng sem tengdust nafni
hans á netveitunum Yahoo! og Hotmail. Í
dag hafði komið nærri 2 þúsund
dala boð í netfangið PopeBenedictXVI.com
á uppboðsvefnum eBay.
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.