Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Rómarspjall Létt hjal ritstjóra RV um
eitt og annað sem tengist Ítalíu. Ítalska Örstutt um ítalska tungu og
stöðu hennar meðal rómanskra tungumála.
BERLUSCONI
Svo
virðist sem forsætisráðherrann
ítalski hafi náð fram einokun
á einokun.
- Silvio Berlusconi er langáhrifamesti maður
Ítalíu og einstakur í sinni
röð. Ítalir kalla hann Il Cavaliere
- séntilmanninn. Meira
ÍTÖLSK TUNGA
Alþýðumálið
er mállýska af ríkismálinu,
og því ómenntaðri sem mælandinn
er, því lengra er hann frá ríkismálinu.
Fjölmargt ítölskumælandi
fólk kann þess vegna ekki ríkismálið
og á það aðallega við fólk
í löndum utan Evrópu. Meira
SVONA
ERU ÍTALSKIR KARLMENN
07.03.2006 / Fréttablaðið Heimilisstörfin í Evrópu:
Ítalskir karlmenn latir
Ítalskir og spænskir karlmenn standa sig
verst allra karlmanna við að aðstoða maka
sinn við heimilisstörfin samkvæmt nýrri
könnun Eurostat. Eyða ítalskir karlmenn
þannig aðeins 95 mínútum á
dag við matseld, uppvask, þrif eða annað
það sem telst öllu jöfnu til heimilisverka.
Spænskir karlmenn eru vart hótinu betri með
aðeins 97 mínútur að meðaltali
daglega en það er tæplega klukkustund
skemur en til að mynda karlmenn í Noregi og
Svíþjóð segjast gera.
Þingið Ítalska Þingið,
Parlamento, skiptist í efri og neðri
deild, það er, fulltrúadeild, Camera
dei deputati, sem 630 þingmenn sitja, og öldungadeild
Senato, sem 315 sitja og allt að 10 lífstíðaröldungar,
þar á meðal fyrrverandi forsetar.
Kosið er til hvorrar deildar um sig á
fimm ára fresti. Þingið hefur aðsetur
í Róm og eru deildirnar í daglegu
tali kallaðar eftir þeim byggingum sem
þær hýsa, það er barokkhöllin
Palazzo di Montecitorio og Palazzo Madama. Meira
Í
FRÉTTUM VAR
ÞETTA HELST ...
Mbl.is 14.11.2002 Mafíuforingi snortinn
af orðum páfa
Mafíuforinginn Benedetto Marciante gaf sig
fram við lögreglu í Róm á
Ítalíu í dag eftir að hafa
hlýtt á ræðu Jóhannesar
Páls páfa á ítalska
þinginu í dag. Marciante, sem var dæmdur
til þrjátíu ára fangelsisvistar
fyrir morð í fjarvist sinni, er sagður
hafa tekið ákvörðun um að
gefa sig fram er hann hlýddi á orð
páfa um gildi fjölskyldunnar.
"Hann tók skyndiákvörðun,"
segir Roberto Tricoli, lögfræðingur
Marciantes. "Hann hringdi í mig úr
fangelsinu til að segja mér fréttirnar.
Á þrjátíu ára
starfsferli mínum hef ég aldrei upplifað
annað eins. Þetta er kraftaverk."
Þá segir Tricoli Marciante hafa sagt
sér að ummæli páfa hafi
snert sig og vakið trúartilfinningar
sínar.
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.