| |
|
| |
|
 |
LEITA
í VEFNUM |
 |
|
|
| |
| Sláðu inn það
efnisorð sem þú hefur áhuga
á að fræðast um í Rómarvefnum. |
|
|
 |
HÚSNÆÐI
á ÍTALÍU |
 |
|
|
Hús í Toskaníu
Casa Casciani í Toskaníuhéraði
er til leigu allt árið. Upplýsingar
hér |
|
|
 |
NÝTT
í VEFNUM |
 |
|
|
 |
|
08.05.09 Mussolini og launsonurinn.
Lesa
17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og
annað sem hægt er að gera í Róm.
Lesa
15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér
í beint samband við fornöldina. Lesa
04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er
mikil og hefur stórbatnað síðustu árin.
Lesa
02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að
heimsækja í Verónu. Lesa |
|
 |
FERÐAVEFIR |
 |
|
|
| |
|
 |
SKÁLDIÐ
SAGÐI ... |
 |
|
|
Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu. |
|
|
 |
UMSAGNIR |
 |
|
|
 |
|
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Meira |
|
|
| |
|
|
| Aðfararnótt þrettándans flýgur nornin Befana á milli húsa Ítalíu, rennir sér niður reykháfa og skilur eftir sitthvað gott í jólasokkum góðu barnanna. Maríudagur Áttundi desember er almennur frídagur á Ítalíu og þá má segja að jólaundirbúningnum sé hringt inn fyrir alvöru. Þetta er dagur hins flekklausa getnaðar Maríu meyjar, þ.e. þegar Anna móðir Maríu varð ólétt af henni. Eitt helsta Maríulíkneski Rómar trónir hátt uppi á korinþskri súlu á Spánartorgi og þennan dag safnast þangað páfinn og hans fólk að votta guðsmóðurinni virðingu sína. Slökkvilið bæjarins sér um að leggja blómsveig að fótum madonnunar þarna hátt uppi, en svo segja sögur að sprækari páfar síðustu aldar hafi klifrað þetta sjálfir. Við súlufótinn er svo raðað blómsveigum með kærum kveðjum frá helstu fyrirtækjum landsins.  | | Cartolina di natale - jólakort af vef ítalskra skólabarna. | Jólin Aðfangadagur, Vigilia, er hversdagur, en búðir loka þó aðeins fyrr en venjulega. Jóladagur, Natale, og annar í jólum, Santo Stefano (Stefánsmessa) eru svo frídagar. Áramót Gamlársdag ber upp á Silvestersmessu og er dagurinn við þann helga páfa kenndur, San Silvestro. Dagurinn er vinnudagur eins og aðfangadagur, en nýársdagur almennur frídagur. Áramótin sjálf eru kölluð capodanno, sem er slípuð orðmynd capo di anno, upphaf árs. Um kvöldið er venjulega borðaður margréttaður hátíðarkvöldverður, cenone eða vaglione, sem endar með bjúgnabaunasúpu (cotechino con lenticchie) á miðnætti, en baunirnar eiga að færa manni fleiri lírur í vasann á komandi ári. > Lestu um áramót í Róm. La Befana Aðfararnótt Þrettándans flýgur nornin Befana á milli húsa Ítalíu, rennir sér niður reykháfa og skilur eftir sitthvað gott í jólasokkum góðu barnanna, en þeim óþekku gefur hún kolamola (sem nú til dags eru svart sykurfrauð). Sagan af Befönu er gott dæmi um tilurð þjóðsagna og alþýðuskýringa. Sjötti janúar er dagurinn sem guðdómleiki Jesúbarnsins opinberaðist vitringunum þremur, heitir á ítölsku Epifania di Nostro Signore, en það eru gjafirnar hennar Befönu sem dagurinn snýst um í rauninni og börnin eru spenntust fyrir. > Meira um Befönu. Lestu meira um Jesú, Maríu og Jósef í hinu ítalska presepio, um nornina Befönu og um jól og áramót í Róm. Sjá líka um Hátíðir og merkisdaga Rómar og Ítalíu. | |
|
|