| |
|
| |
|
 |
LEITA
í VEFNUM |
 |
|
|
| |
| Sláðu inn það
efnisorð sem þú hefur áhuga
á að fræðast um í Rómarvefnum. |
|
|
 |
HÚSNÆÐI
á ÍTALÍU |
 |
|
|
Hús í Toskaníu
Casa Casciani í Toskaníuhéraði
er til leigu allt árið. Upplýsingar
hér |
|
|
 |
NÝTT
í VEFNUM |
 |
|
|
 |
|
08.05.09 Mussolini og launsonurinn.
Lesa
17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og
annað sem hægt er að gera í Róm.
Lesa
15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér
í beint samband við fornöldina. Lesa
04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er
mikil og hefur stórbatnað síðustu árin.
Lesa
02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að
heimsækja í Verónu. Lesa |
|
 |
FERÐAVEFIR |
 |
|
|
| |
|
 |
SKÁLDIÐ
SAGÐI ... |
 |
|
|
Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu. |
|
|
 |
UMSAGNIR |
 |
|
|
 |
|
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Meira |
|
|
| |
|
|
| Jólatónninn er gefinn þegar novello vínið ítalska, rauðvín úr sumaruppskerunni, kemur á markaðinn í byrjun nóvember. Jól í Róm Það verður ekki annað sagt en að það sé jólalegt í Róm um hátíðirnar þótt enginn sé snjórinn - það gerist jú víðar að hann vanti. Jólatónninn er gefinn þegar novello vínið ítalska, rauðvín úr sumaruppskerunni, kemur á markaðinn í byrjun nóvember. Á sama tíma tekur ilmur af ristuðum kastaníuhnetum að berast úr götugrillum sölumanna, en ungvínið og hneturnar eiga sérstaklega vel saman. Áttundi desember er almennur frídagur á Ítalíu og þá má segja að jólaundirbúningnum sé hringt inn fyrir alvöru. Þetta er dagur hins flekklausa getnaðar Maríu meyjar, þ.e. þegar Anna móðir Maríu varð ólétt af henni. Eitt helsta maríulíkneski Rómar trónir hátt uppi á korinþskri súlu við suðurenda Spánartorgs, n.t.t. við Mignanellitorg, og þennan dag safnast þangað páfinn og hans fólk að votta guðsmóðurinni virðingu sína. Slökkvilið bæjarins sér um að leggja blómsveig að fótum madonnunar þarna hátt uppi, en svo segja sögur að sprækari páfar síðustu aldar hafi klifrað þetta sjálfir. Við súlufótinn er svo raðað blómsveigum með kærum kveðjum frá helstu fyrirtækjum landsins. Maríusúlan var reist árið 1854 í tilefni af því að Píus páfi IX. viðurkenndi meyfæðingu meyjarinnar sjálfrar. Efst á súlunni trónir guðsmóðirin steypt í brons, en við hvert horn mikilúðlegs fótstallsins situr einn af spámönnun Gyðinga, þeir Móses, Davíð, Ísak og Esekíel.  | | POPOLOTORG FRÁ PINCIO Séð yfir Piazza Popolo og áfram vestur yfir borgina frá Pincióhæð í Villa Borghesegarðinum. | Á aðventu er fallegu skautasvelli komið fyrir uppi á Pinciohæð þar sem sér yfir Popolotorg og áfram yfir borgina, en jólamarkaður opnaður á Navónutorgi. Á þessu fegursta torgi borgarinnar eru sölubásar með sælgæti, brúðum og böngsum allskonar, myndastyttum og fylgihlutum í presepio - og lítið tívolí fyrir yngstu börnin. Hver gata eða verslunarhverfi bæjarins hefur sína sérstöku skreytingu; jólaljósin gleðja augu og hjarta manns, sumstaðar kyndlar á húsveggjum sem hæfa aldri híbýlanna og manni finnst maður allt eins geta átt von á því að ganga í flasið á, segjum, landa sínum Thorvaldsen við næsta húshorn. Það er jólalegt í búðum bæjarins, varla þarf að taka það fram, svo mikilvæg sem jólin eru kaupmönnum; tísku- og gjafavöruverslanir láta ekkert vanta, en matarbúðirnar bókstaflega úttroðnar af pylsum og svínalærum, kökum og súkkulaði, léttum vínum og höfugri; hillur kaffibúða þéttraðaðar frá gólfi og uppúr kökukössum og listilega innpökkuðu súkkulaði til jólagjafa, að ógleymdu kaffinu sjálfu sem fæst sérmalað eftir vigt. Úti á götu eru blómasalar með bása og bjóða jólatré og jólarósir. Desemberveður Rómar er milt, hægt að sitja úti á kaffihúsum undir hitablásurum og virða fyrir sér mannlífið á milli þess sem maður gæðir sér á kaffi, ís, léttvíni eða líkjör. Lestu líka um Jesú, Maríu og Jósef í hinu ítalska presepio, um nornina Befönu og áramót í Róm. Sjá líka um Hátíðir og merkisdaga Rómar og Ítalíu. | |
|
|