 |
|
| ANTICA BOTTEGA DEL VINO Hér er horft úr aðalsal veitingastaðarins t.v. í innsal og t.h. á barinn hvar panta má smakk af á annað hundrað vína, en á krítartöflunni má sjá lista yfir helstu vínin. Fáir staðir í heiminum gera víninu jafn hátt undir höfði, segir Steingrímur Sigurgeirsson. |
Vínseðill hússins skartar umfangsmiklu úrvali ítalskra vína, alls um 2.800 tegundum, og eru veggir þess þaktir vínflöskum. Á annað hundrað tegundir vína eru seldar í glasavís og gefur úrvalið að líta á stórri krítartöflu sem hangir yfir barnum. Bara að nefna hérað og gestur hefur úr tugum vína að velja og smakka! Í vínkjallaranum eru geymdar um 30.000 flöskur svo enginn ætti að koma að tómum kofanum þar (þó að Steingrímur sé öflugur smakkari!). Steingrímur segir matinn á staðnum vera einfaldan ítalskan sveitamat; pylsur og ostar, grillaðar lambakótelettur með rucola-pestosósu, risotto, pasta, að sjálfsögðu, og hrossakjöt. Maturinn er ágætur, ekki stórkostlegur, enda er það stemmningin og vínseðillinn sem trekkir, segir Steingrímur og tiltekur að staðurinn sé ávallt þéttsetinn. Á heimavef Bottega dei vini, www.bottegavini.it, er hægt að skoða öll salarkynni staðarins í hringsjá, kynna sér matar- og vínseðil hússins, panta borð og margt fleira. Pistill Steingríms birtist í Morgunblaðinu föstudaginn 1. september 2006. |