E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  ÍTALÍA > STJÓRNMÁL
Stjórnkerfið

Kosningarétt hafa allir Ítalir sem eru 18 ára og eldri, en 25 ára þurfa þau að vera sem kjósa fulltrúa til setu í Öldungadeildina fimmta hvert ár. Forseti Lýðveldisins Ítalíu er Giorgio Napolitano, forsætisráðherra Romano Prodi.

KÓNGUR MEÐ SKEGG Viktor Emanúel II. var fyrsti konungur Ítala.
Konungsveldið Ítalía
Það var árið 1870 að Róm var tekin með áhlaupi Garibaldis og manna hans og borgin gerð að höfuðborg sameinaðrar Ítalíu og aðsetur konungsins, Viktors Emanúels II. Konungsveldi sameinaðrar Ítalíu stóð ekki lengi – 85 ár – enda seint komið á. Savoj ættin, úr samnefndu hertogadæmi í suðausturhorni Frakklands, var konungsætt Ítalíu frá 1861 – 1946, en þá var hún útlæg ger úr ríkinu.

Það var Viktor Emanúel III. sem var konungur Ítalíu á valdatíma Mússolínís og Fasistaflokks hans. Hann þótti linur gagnvart einræðisherranum og var m.a. sakaður um að hafa stutt það að um átta þúsund Gyðingar voru sendir úr landi á tímum Heimsstyrjaldarinnar síðari. Níunda maí árið 1946 sagði konungurinn af sér og sonur hans, Úmbertó II., tók við. Hann var þó aðeins við völd í mánuð, en þá samþykktu Ítalir í þjóðaratkvæðagreiðslu að afnema konungdæmið og lýsa landið lýðveldi. Tveimur árum síðar var samþykkt ný stjórnarskrá sem sendi Úmbertó og afkomendur hans í útlegð og bannaði þeim með öllu að koma nokkurn tíman aftur til Ítalíu. Úmbertó lést í Sviss 1983, en Viktor Emanúel heitir sonur hans, síðasta konungs Ítala.

Konungsfjölskyldan barðist fyrir því árum saman að fá að snúa aftur til Ítalíu og vísaði máli sínu til Mannréttindadómstóls Evrópu eftir að Evrópuþingið synjaði beiðni þeirra þar um árið 2000. Barátta þeirra endaði svo að árið 2002 lýsti fjölskyldan því formlega yfir í bréfi til ítalska þingsins að hún afsalaði sér öllum kröfum til ítölsku krúnunnar. Í kjölfarið voru sett lög á Ítalíu sem heimiluðu Viktori Emanúel og Filibertó syni hans að snúa aftur til Ítalíu ef þeir kysu. Það gerðu þeir árslok það sama ár er fjölskyldan gerði sér einkaheimsókn til Jóhannesar Páls í Páfagarði.

Konungar úr Savoj-fjölskyldunni
Vittorio Emmanuel II (1861-1878)
Umberto I (1878-1900)
Vittorio Emmanuel III (1900-1946)
Umberto II (1946)

Lýðveldið Ítalía
Það var ekki fyrr en 1946 sem núverandi stjórnskipulag komst á með nýrri stjórnarskrá. Þá var landið gert að lýðveldi og konungurinn og erfingjar hans sendir í útlegð. 1994 urðu miklar umbreytingar í stjórnmálunum vegna hinna miklu og útbreiddu spillingarmála. Fjölmiðlafurstinn Silvio Berlusconi og flokkur hans Áfram Ítalía, Forza Italia, vann hægrimönnum sigur með kosningabandalagi við Þjóðfylkinguna og settist í forsæti ríkistjórnarinnar. Sú stjórn hélt ekki lengi og brátt varð forsætisráðherran sjálfur aðalpersónan í nýju spillingarmáli. Eftir útreiðina frá 1994 endurskipulögðu vinstriflokkarnir sig. Romano Prodi var leiðtogi flokks vinstri klofnings úr gamla Kristilega demókrataflokknum. Varð hann forystumaður Ólífubandalagsins, L'Ulivo, regnhlífasamtaka mið- og vinstriflokka sem tóku við ríkisstjórn í maí 1996. Sú stjórn dugði í tæp tvö og hálft ár, er vinstrimaðurinn D'Alema tók við í október 1998. Margt nýtt var í þeirri stjórn líka. Nú var kommúnisti sestur á ráðherrastól í fyrsta skipti síðan 1947 og aðild að stjórninni áttu Kristilegir demókratar undir forystu Cossiga, sem áður hafði verið forsteti.

Ítalski kommúnistaflokkurinn var stærsti kommúnistaflokkur í Vestur-Evrópu og yfir 2 milljónir manna voru félagar í flokknum á sjöunda áratug síðustu aldar. Flokkurinn naut stuðnings um 30% kjósenda þar til í lok áttunda áratugarins.

Ítalía vs. Rússland
Með líku lagi leystust nokkrir helztu stjórnmálaflokkar Ítalíu upp um svipað leyti [1990], þegar uppvíst varð um gríðarlega spillingu í herbúðum þeirra. Að vísu höfðu allir alltaf vitað um spillinguna þarna suður frá, ekki síður en í Sovétríkjunum. Það, sem breyttist eftir 1990, var það, að dómstólarnir tóku sér loksins meira sjálfstæði gagnvart flokkunum, og heiðvirðum dómurum tókst að koma svo lögum yfir spillta stjórnmálamenn, að flokkarnir neyddust til að leggja upp laupana. Enginn vafi er þó á því, að báðum löndum vegnar miklu betur nú, eftir að gömlu spilltu flokkarnir hurfu sjónum eða a.m.k. frá völdum. Samt fer því fjarri, að öll kurl séu komin til grafar í löndunum tveim.

- Þorvaldur Gylfason: Að gera hlutina í réttri röð.
Fréttablaðið, 5. ágúst 2004.



Þingkosningar 2006
Kosið var ti þings á Ítalíu sunnudaginn 9. og mánudaginn 10. apríl 2006. Ítalska Þingið, Parlamento, skiptist í efri og neðri deild, það er, fulltrúadeild, Camera dei deputati, sem 630 þingmenn sitja, og öldungadeild Senato, sem 315 sitja. Kosið er til hvorrar deildar um sig á fimm ára fresti. Alls voru um 47 milljónir manna á kjörskrá sem kusu um þessi 945 sæti.

Mjótt var á munum í kosningunum og ekki ljóst fyrr en rúmum sólarhring eftir að kjörstöðum lauk hvernig færi. Vinstri fylking Romanos Prodis hlaut meirihluta í báðum deildum þingsins, 348 þingsæti í neðri deild gegn 277. Munurinn var hinsvegar minni í efri deildinni, en þar munaði einungis tveimur þingsætum, 158 á móti 156.

Það var svo þann 20. apríl að dómstóll á Ítalíu gaf út formlega staðfestingu þess, eftir að hafa farið yfir 5.200 vafaatkvæði, að Romano Prodi og flokkabandalag hans væru löglegir sigurvegarar kosninganna.

Lestu um forsætisráðherrann fyrrverandi í Svipmynd af Berlusconi.

ÞINGHÚSIÐ Þinghús Fulltrúadeildarinnar í Montecitorio. Einsteinunginn framan við þinghúsið flutti Ágústus keisari inn frá skattlandi sínu Egyptalandi og notaði í sólúr á þessum slóðum.
Ríkisstjórnin
Romano Prodi myndaði nýja ríkisstjórn á Ítalíu 17. maí 2006. Tilviljun réði því að þennan sama dag tíu árum áður myndaði hann sína fyrstu ríkisstjórn sem entist aðeins til ársins 1998 eða í um tvö ár. Prodi afhenti nýkjörnum forseta, Giorgio Napolitano, ráðherralistann daginn eftir að hann fékk stjórnarmyndunarumboð. Þar með lauk meira en mánaðarlöngu óstöðugleikatímabili í ítölskum stjórnvöldum, sem hófst í kjölfar þingkosninganna í byrjun apríl. Prodi og flokkabandalag hans vann þar afar nauman sigur á Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra, sem lengi vel neitaði þó að viðurkenna ósigur sinn.

Að nýju stjórninni standa tveir stórir miðjuflokkar ásamt fjölskrúðugum hópi smærri flokka, allt frá kommúnistum til fyrrverandi kristilegra demókrata. Tveir fyrrverandi forsætisráðherrar eru í nýju ríkisstjórninni, þeir Massimo D'Alema, fyrrverandi kommúnisti sem er utanríkisráðherra, og Giuliano Amato úr Sósíalistaflokknum, sem er innanríkisráðherra og þar með yfirmaður lögreglu landins og leyniþjónustunnar. Náinn samstarfsmaður Prodis, Arturo Parisi, er varnarmálaráðherra.

MONTECITORIOHÖLL Fulltrúadeild ítalska þingsins er til húsa í þessari 17. aldar höll sem kennd er við Citorio hæð. Torgið fyrir framan heitir og Piazza di Montecitorio. Takið eftir að óbiliskuna vantar á stallinn í forgrunni myndarinnar. Á bak við húsið hægra megin á myndinni glittir í súlu Árelíusar keisara með postulann Pál á súlutoppinum. <STÆKKA>

MONTECITORIOHÖLL Þingsalur Fulltrúadeildarinnar þykir gott dæmi um nýstíl á Ítalíu, art nouveau, eða Liberty eins og Ítalir kalla stefnuna. <STÆKKA>
Þingið
Ítalska Þingið, Parlamento, skiptist í efri og neðri deild, það er, fulltrúadeild, Camera dei deputati, sem 630 þingmenn sitja, og öldungadeild Senato, sem 315 sitja og allt að 10 lífstíðaröldungar, þar á meðal fyrrverandi forsetar. Kosið er til hvorrar deildar um sig á fimm ára fresti. Þingið hefur aðsetur í Róm og eru deildirnar í daglegu tali kallaðar eftir þeim byggingum sem þær hýsa, það er barokkhöllin Palazzo di Montecitorio (byggð 1694, fulltrúadeildin) og Palazzo Madama (öldungadeildin, sem er í höll sem kennd er við maddömmu nokkra og er rétt við Navónutorg).

Forsætisráðherra
Forsætisráðherra, Presidente del Consiglio, er formaður ríkisstjórnarinnar, skipaður af forseta. Forsætisráðuneytið, Consiglio dei Ministri, er til húsa í Palazzo Chighi, við hlið fulltrúadeildarinnar, og snýr að Colonna torginu þar sem súla Árelíusar keisara stendur. Forsætisráðherra Ítalíu frá maí 2006 er Romano Prodi.

Forsetinn
Forsetinn, Presidente della Repubblica, oft nefndur Capo dello Stato, er þjóðhöfðingi, þarf að vera fimmtugur að aldri og er kosinn af sameinuðu þingi og héraðsstjórnarmönnum, alls um þúsund manns, til sjö ára. Hlutverki hans og völdum svipar mjög til þess sem forseti Íslands hefur með höndum. Hann getur rofið þing og boðað til kosninga eða efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu vegna einstakra mála. Hann felur stjórnmálaforingjum umboð til stjórnarmyndunar í samráði við þingflokksformenn, fyrrverandi þjóðhöfðingja og þingforseta beggja deilda. Forsetinn stjórnar og situr ásamt varaforsetanum, Vicepresidente, ex officio í ráði Consiglio superiore della Magistratura, sem sinnir embættisveitingum og eftirliti með störfum dómara.

Núverandi forseti er Giorgio Napolitano sem kosinn var af sameinuðu þingi í maí 2006 eftir fjórar umferðir. Napolitano er fyrrverandi kommúnisti, sá fyrsti úr þeirra röðum sem tekur við forsetatign á Ítalíu. Hann er áttræður og hefur átt sæti í Öldungadeildinni sem einn af sjö heiðursþingmönnum til æviloka. Napolitano nýtur víða virðingar og þykir bæði hógvær og réttsýnn. Átti hann þátt í því á sínum tíma að umbreyta Kommúnistaflokknum í vinstrisinnaðan demókrataflokk. Fyrirrennari Napolitanos var Carlo Azeglio Ciampi sem kosinn var 13. maí 1999.


Ítalía og Páfagarður
Við fall Rómar og fulla sameiningu Ítalíu árið 1870 leit páfinn á sig sem fanga konungsríkisins. Neitaði hann að viðurkenna ríkið og hélst það ástand til ársins 1929 að Mússolíní gerði hinn sk. Lateran samning við Páfagarð um sjálfstæða stöðu þess sem ríkis innan þess ítalska. Sá samningur hefur síðan haldið.

Mbl.is 14.11.2002
Páfi heimsækir ítalska
þingið í fyrsta skipti

Jóhannes Páll páfi II braut blað í dag þegar hann kom í ítalska þinghúsið til að flytja þar ávarp. Carlo Azeglio Ciampi forseti Ítalíu og Silvio Berlusconi forsætisráðherra tóku á móti páfa í þinghúsinu. Er Jóhannes Páll fyrsti páfi sögunnar sem ávarpar ítalska þingið. Nokkrar deilur hafa verið um heimsókn páfa og hafa þingmenn, sem ekki eru kaþólskrar trúar, óttast að páfi myndi nota tækifærið og reyna að hafa afskipti af ítölskum innanríkismálum og afla stuðnings við skoðanir sínar um almennt siðgæði og ræði samkynhneigð, hjónaskilnaði, fóstureyðingar og getnaðarvarnir. Ljóst þótti þó að páfi myndi reyna að sneiða hjá öllu slíku í ávarpi sínu. Nokkrir þingmenn lýstu því yfir að þeir ætluðu ekki að vera viðstaddir þingfundinn og aðrir hafa krafist þess að þingforseti ávarpi Jóhannes Pál sem páfa en ekki „heilagan föður“.

Borgarstjórn Rómar
Ráðhús Rómar er uppi á Kapítólhæð, Campidoglio. Árið 1993 var tekin upp bein kosning borgarstjóra og síðan þá hafa fulltrúar Ólífubandalags miðju- og vinstri flokka ráðið borginni. Borgarstjóri, sindaco, er Walter Veltroni frá 2001. Fornt tákn boargarinnar sem enn er notað er SPQR, þ.e. Senatus Populus Que Romanus = Öldungaráðsins, alþýðunnar og Rómar.


HEIMILDIR: Skýringarmynd um kosningar 2006 fengin af Mbl.is í apríl 2006.

Ítalska þingið: www.parlamento.it
Öldungadeildin: www.senato.it
Forsætisráðuneytið: www.palazzochigi.it
Rómaborg: www.comunediroma.it

 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband