E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  ÍTALÍA > SAGA
Mussolini og launsonurinn
  Mussolini var einn af stofnendum ítalska fasistaflokksins og höfuð (duce) hans og einræðisherra Ítalíu árin 1922–1943.


BENITIO MUSSOLINI 1883 - 1945
„Hann var ofbeldisfullur, útsmoginn, og miskunnarlaus maður , jafnvel gagnvart konunni sem hann elskaði og sínum eigin syni.“

Þetta segir Marco Bellocchio, leikstjóri kvikmyndarinnar Vincere, sem frumsýnd verður á kvikmyndahátíðinni í Cannes í maí 2009. Þar beinir Bellocchio sjónum sínum að leynilegu ástarlífi ítalska einræðisherrans Benito Mussolinis og launsyni hans, en Mussolini gerði allt til að halda ástarsambandi sínu og syninum leyndu svo það spillti ekki valdabrölti hans.

„Sú mynd sem ég dreg upp af Mussolini á ekkert skylt með þeirri ímynd sem stundum er dregin upp af honum sem umhyggjusömum landsföður sem aðeins hafi gert þau einu mistök að mynda bandalag með Hitler,“ segir Bellocchio.

Árið 1914 var Mussolini 31 árs, meðlimur í Sósíalistaflokknum og ritstjóri dagblaðsins Avanti. Hann hafði þá þegar verið í sambúð með Rachele Guidi í tvö ár, en hún varð síðar eiginkona hans. Það kom þó ekki í veg fyrir að Mussolini stofnaði til fjölda ástarsambanda.

Ein ástkvenna hans var hin sjálfstæða Ida Irene Dasler, sem var þremur árum eldri en hann og rak sína eigin hárgreiðslustofu. Dasler stóð við bakið á Mussolini þegar Sósíalistaflokkurinn rak hann úr flokknum fyrir að styðja aðild Ítala að annarri heimsstyrjöldinni. Hún seldi einnig hárgreiðslustofuna sína til þess að Mussolini hefði fjárhagslegt bolmagn til þess að stofna sitt eigið dagblað, Il Popolo d'Italia. Sumir sagnfræðingar halda því fram að Mussolini og Dasler hafi gift sig árið 1914, en það hefur ekki verið staðfest.



Dasler var ólétt í sjöunda mánuði þegar Mussolini hélt á vígvöllinn í ágúst 1915 og fæddi son þeirra, Benito Albino, 11. nóvember það sama ár. Hún sendi barnsföður sínum bréf með tíðindunum, en fékk aldrei neitt svar. Þegar hún frétti af því að hann hefði verið lagður inn á spítala hélt hún til fundar við hann ásamt syni þeirra. Daginn áður en hún kom á fund hans kvæntist Mussolini Rachele Guigi á spítalanum.

Mussolini lofaði Dasler að hann myndi gangast við faðerninu og stóð við það. Hann greiddi meðlag með syninum. Fljótlega snéri Mussolini hins vegar baki við fyrrum ástkonu sína. Hætti að svara bréfum hennar og lét lögregluna fylgjast með hverju fótmáli hennar. Hún kvartaði formlega undan framkomu hans í sinn garð. Þegar Mussolini komst til æðstu valda í nóvember 1922 jók hann eftirlitið með Dasler. Árið 1926, þegar Mussolini var ótvírætt orðinn einræðisherra sem hafði múlbundið fjölmiðla landsins og stjórnarandstöðuna, lét hann handtaka Dasler og koma henni fyrir á geðsjúkrahúsi.

Sonur þeirra, Benito Albino, var tekinn frá móður sinni og settur í fóstur. Dasler var eftir þetta færð milli geðsjúkrastofnana, mátti ekki skrifa neinum né hitta fólk utan sjúkrahússins. Hún lést árið 1937, þá 57 ára gömul. Sonur hennar var aðeins 11 ára þegar hann var settur í fóstur. Hann stundaði nám í heimavistarskóla þar til hann varð 18 ára gamalla og gekk þá í sjóherinn. Þó Mussolini hefði engin samskipti við son sinn fylgdist hann gaumgæfilega með honum.

Benito Albimo hélt góðum tengslum við móðurfólk sitt og olli það Mussolini mikilli gremju. Hann lét því fyrirvaralaust senda son sinn til Asíu árið 1934. Ári síðar þegar Benito Albino snéri heim til Ítalíu var hann lagður inn á spítala og síðar fluttur á geðsjúkrahús árið 1936. Þar lést hann sex árum síðar aðeins 26 ára gamall. Mæðginin, Benito Albino og Ida Irene Dasler, eru grafin í ómerktum gröfum.


Textinn er úr frétt Mbl.is, 8.5.2009.

> Sjá Mússólíní lýsa yfir stríði Youtube. Árið er 1940 og hann flytur ræðuna af svölum Venezia hallar við samnefnt torg (Feneyjatorg) í miðborg Rómar.
> Sjá fréttamynd frá 1945 af endalokum Mússólínís á Youtube
 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband