E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
HÚSNÆÐI á ÍTALÍU
Hús í Toskaníu
Casa Casciani í Toskaníuhéraði er til leigu allt árið. Upplýsingar hér
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  ÍTALÍA > BORGIR & BÆIR
Kaprísveinn vitjar vinar
  Vestfirðingarnir, þingmennirnir og pólitísku andpólarnir
Össur Skarphéðinsson og Einar Oddur Kristjánsson
fóru í eftirminnilegan skreppitúr til Kaprí.

Eftir Össur Skarphéðinsson

Ég var flottur á því síðasta daginn í ferð okkar Einars Odds Kristjánssonar alþingismanns til Napólí fyrstu vikuna í júlí. Ítalska þingið bauð til mikillar veislu um kvöldið - en ég afþakkaði hana fyrir hönd okkar tvímenninganna. Í staðinn bauð ég heimastjórninni í holdgervingu Einars Odds með mér til Kaprí!

Það er ekki oft sem stjórnarandstaðan tekur með þvílíkum silkihönskum á heimastjórninni - og Einar Oddur sem er sjentilmaður einsog þeir gerast bestir þáði boðið með þökkum. Mig hefur alltaf langað til að koma til Kaprí frá því ég las í stofunni heima hjá afa og ömmu ljóð Davíðs þjóðskálds Stefánssonar um Katarínu og Kaprísveinana. Seinna las ég kafla í bók um Davíð þar sem sagt var frá ferðinni til Kaprí og einhvern veginn greyptist klettaeyjan inn í hug minn og var þar föst allar götur síðan.

Við tókum okkur fari með hraðskreiðu farþegaskipi til Kaprí, og vorum ekki nema tæpa klukkustund á leiðinni. Eyjan reis einsog stórbrotið virki úr sjónum, umvafin gliti síðdegissólarinnar. Húsin voru smágerð og falleg, og það var notalega letilegur blær yfir lífi eyjarskeggja. Settið úr La Dolca Vita gerði hana fræga á árum áður. Kvikmyndastjarnan Sophia Loren er enn tíður gestur á Kaprí og Marcello Mastroianni kom þar oft meðan hann var á dögum.. Ekki hittum við Einar Oddur þó á Sophiu, en undum þó glaðir við okkar.

„Svo eftir að hafa farið um eyjuna alla og gert heppileg innkaup, og bragðað á hinu fræga víni Kaprí sem kennt er við Tíberíus, þá sátum við í flæðarmálinu, létum sjóinn leika við vestfirska fætur, og ræddum Sesar og Kleópötru - og Pompeius.“

Við sömdum við leigubílstjóra sem ók okkur um alla eyjuna, og við sungum fyrir hann um Katarínu- og spurðum hvort verið gæti að afi hans hefði verið einn af Kaprísveinunum sem skáldið orti um. Hann varð glaður við að heyra að íslenskt skáld hefði fært hróður Kaprí alla leið norður undir heimskautið og sagði að eyjan væri gististaður margra listamanna sem kæmu þangað til að sækja sér sköpunarkraft.

Við ætluðum í Bláa hellinn fræga - en hann reyndist lokaður ferðamönnum að þessu sinni. Svo eftir að hafa farið um eyjuna alla og gert heppileg innkaup, og bragðað á hinu fræga víni Kaprí sem kennt er við Tíberíus, þá sátum við í flæðarmálinu, létum sjóinn leika við vestfirska fætur, og ræddum Sesar og Kleópötru - og Pompeius. Mig minnti að það hefði verið rómverskur málaliði sem drap Pompeius í Egyptalandi, og bróðir Kleópötru látið færa Sesari höfuð hans í krukku þegar hann kom sjálfur til Egyptalands. Einar mundi þetta öðru vísi - og við deildum meira um endalok Pompeiusar en efnahagsmál á Íslandi. Við vorum meira og minna sammála um efnahagsaðgerðir heimastjórnarinnar. Segir ekki meira af því.

Stéttabaráttan gerði okkur illan grikk þegar við komum aftur til Napólí um kvöldið. Verkalýðurinn í Napólí er annálaður fyrir baráttugleði og róttækni. Leigubílstjórarnir eru harðasti kjarni hans. Hugsanlega hafa þeir haft af því spurnir að Einar Oddur - heiðursfélagi í evrópsku atvinnurekendasamtökunum - væri kominn í bæinn. Þegar við komum um kvöldið heim til Napóli úr ferðinni til Kaprí tók á móti okkur á kajanum óvígur her manna með mótmælaspjöld og hávær vígorð. Það voru leigubílstjórar sem höfðu ákveðið að leggja niður störf.

Það kom þó í ljós að þeir voru hvorki að mótmæla mér né Einari Oddi, heldur Romano Prodi, hinum nýja forsætisráðherra Samfylkingarinnar á Ítalíu. Hann er að innleiða meira frjálsræði í efnahagslífið að hætti jafnaðarmanna - og hafði deginum áður tilkynnt að meðal annars stefndi hann að því að fjölga leigubílaleyfum. Því var svarað með verkfalli leigubílstjóra um alla Ítalíu deginum síðar. Svo ekki er evrópsk verkalýðshreyfing með öllu dauð. Við Einar Oddur lentum því í töluverðum vanda að komast af kajanum heim á hótel - en með samstilltu átaki stjórnar og stjórnarandstöðu tókst að yfirvinna þau vandkvæði sem stéttaátök á Ítalíu höfðu í för með sér fyrir íslenska ferðalanga.


Pistill þessi er úr bloggi höfundar frá 7. júlí 2006 með yfirskriftina „Heimastjórninni boðið til Kaprí“ og birtur með góðfúslegu leyfi.
www.ossur.hexia.net

 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 13.03.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía   © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband