E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  ÍTALÍA > BORGIR
Feneyjar
  Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti
íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar,
en margar fallegar brýr tengja hólmana saman.

Hin sérstæða lega borgarinnar, síkin útbreiddu, torgin og hin forna saga - þetta allt laðar fleiri ferðamenn til Feneyja en flestra annarra borga heimsins. Stórfengleg listaverk gömlu meistaranna prýða kirkjurnar og margar af hinum glæsilegu höllum er áður voru híbýli hefðarfólks hafa nú fengið ný hlutverk sem listasöfn eða gististaðir.

Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar. Margar fallegar brýr tengja hólmana saman og því er þægilegt að fara ferða sinna fótgangandi en umfram allt skemmtilegt að sigla milli staða á gondóla, að degi eða kvöldi, jafnvel undir angurværum söng ræðarans. Gondólarnir eru smíðaðir samkvæmt gamalli hefð, breiðari í annan endann til þæginda fyrir ræðarann sem aðeins notast við eina ár.

Kaffihúsin eru órjúfanlegur hluti af töfrum Feneyja. Kaffimenning Ítala er einstæð og það er frábær tilfinning að sitja yfir rjúkandi bolla á einhverju torginu og njóta fjölskrúðugs mannlífsins sem fyrir augu ber. Þekktustu kaffihúsin eru við Markúsartorgið sem er þungamiðja borgarinnar og einn þekktasti staður Feneyja. Feneyjar og borgin Mestre eru tengdar saman með brú. Í Mestre eru stór hótel og vöruhús þar sem ítalskur tískuvarningur er seldur.

Frá Feneyjum liggja leiðir til allra átta og ferðamöguleikar óþrjótandi. Það er vinsæll ferðamáti að leigja sér bíl og aka um og upplifa ítalska sveitarómantík, staldra við hjá bændum og smakka uppskeruna, baða sig á fallegum baðströndum og leigja sér hús í einhverju af hinum fjölmörgu héruðum landsins. Nálægðin við Slóveníu og Króatíu eykur enn á ferðamöguleikana.

Feneyska Rivieran
Feneyska Rivieran er einn vinsælasti sumardvalarstaður Ítalíu og strandbærinn Lido di Jesolo býr yfir öllu því besta sem prýtt getur vel heppnað sumarleyfi. Stórkostleg strandlengja, fjörugt næturlíf, góðir veitingastaðir og fjölbreytt skemmtun fyrir fjölskylduna. Lido di Jesolo er nýtískulegur bær sem stendur við 14 km langa strandlengju með gullnum fíngerðum sandi og þar er hægt að stunda fjölbreyttar vatnaíþróttir. Við strandgötu bæjarins eru ótalmargar verslanir með ítalskan tískuvarning opnar langt fram á kvöld. Þar eru einnig lítil torg þar sem heimamenn setja upp markaði og götulistamenn skemmta.

Á föstudögum er markaður á Kennedytorgi, Piazza Kennedy, með fjölmörgum básum þar sem fjölbreyttur varningur er á boðstólum: matvara, fatnaður, blóm, o.m.fl. Fjöldi góðra veitingastaða er við strandgötuna og eftir góða ítalska máltíð með rómuðum vínum héraðsins er tilvalið að bregða sér á dansstað, en þeir eru fjölmargir í nágrenninu og hafa opið fram undir morgun. Sagt er að Lido di Jesolo sé staður sem aldrei sofi.

Stórskemmtilegur vatnsbrautagarður, Aqualandia, er skammt frá ströndinni, með ótal tegundum af rennibrautum og sundlaugum; uppáhaldsstaður barna á öllum aldri. Nálægðin við Feneyjar eykur enn á fjölbreytnina, enda samgöngur þægilegar. Almenningsvagnar, leigubílar og farartækin sem einkenna Feneyjar, „watertaxi“, bátar sem flytja fólki milli staða. Dagsferðir á slóðir Rómeó og Júlíu í Verónu eða að hinu undurfagra Gardavatni gera fríið enn eftirminnilegra. Í Jesolo er auðvelt að gleyma sér í skemmtilegu og líflegu andrúmslofti staðarins.

MARKÚSARKIRKJA Í FENEYJUM
Matur og vín
Veneto héraðið er þekkt fyrir góðan mat - þennan ekta ítalska - og glas af freyðivíni héraðsins (Prosecco) er gjarnan drukkið fyrir mat. Fiskur og ferskt sjávarfang sem einkenna matargerð Veneto héraðsins býðst á fjölda veitingastaða og Parmaosturinn er ómissandi á ólýsanlega góða pastaréttina. Úrvalið er mikið, yfir 2000 veitingastaðir við strandgötuna, og ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Vínsmökkunar- og sælkeraferðir bjóðast á vínbúgarða í sveitunum, þar sem vín hafa verið ræktuð í þúsundir ára.

Strandlíf
Líflegt kvöld- og næturlíf gerir Jesoloströndina að paradís þeirra sem vilja skemmta sér. Diskótek á mörgum hæðum, allskyns barir með lifandi tónlist eða góðum plötusnúð; þarna safnast fjörugt fólk saman, syngur og stígur dansspor.

Íþróttir og vatnasport
Hægt er að stunda köfun, seglbretta- og kajakasiglingar, spila tennis, blak og minigolf, hjóla eða renna sér á línuskautum meðfram ströndinni. Skemmtun fyrir börn á öllum aldri: Dýragarður, Gulliver í Putalandi, Aqualandia og Luna Park eru meðal þeirra skemmtigarða sem eru í næsta nágrenni og gaman er að heimsækja fyrir unga sem aldna.

Ferðir á eigin vegum
Það er sérstök upplifun að ferðast um Ítalíu á eigin vegum. Vegakerfið er gott á hraðbrautum landsins en einnig er auðvelt að aka um sveitavegina og stoppa á búgörðum til að smakka á framleiðslu bænda, ostum, víni, og ólífuolíum. Stutt er að aka til nálægra landa eins og Slóveníu og Króatíu og skoða fallega staði, bæi og yndislega fagra náttúru. Ferð í Dólomítafjöllin gleymist seint þeim sem þangað fara, útsýnið er stórkostlegt og fyrir þá sem áhuga hafa á fjallgönguferðum er þetta þeirra paradís. Eftirminnilegar eru einnig ferðir til Feneyja, Verónu, Mílanó og hins undurfagra Toskaníuhéraðs þar sem skoða má heillandi borgir eins og Lucca og Flórens.


Grein þessi er fengin af vef ferðaskrifstofunnar Úrvals-Útsýnar.

 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband