Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Ósköp venjulegt laugardagssíðdegi í hinum vestræna heimi. Maður kemur við í matvörubúðinni, gluggar í blaðið sitt heima, flakkar á milli sjónvarpsstöðvanna og fylgist loks með uppáhalds knattspyrnuliðinu í kassanum.
Allt saman ósköp venjulegt, nema hvað á Ítalíu er það einn og sami maðurinn sem skaffar þessa þjónustu. Þeir kalla þetta Berlúskónisma.
Svo virðist sem forsætisráðherrann fyrrverandi hafi náð fram einokun á einokun. Silvio Berlusconi var - og er kannski enn - langáhrifamesti maður Ítalíu og sannarlega einstakur í sinni röð. Ítalir kalla hann Il Cavaliere - séntilmanninn.
Ungur frumkvöðull Ungur byrjaði Berlusconi að rækta með sér hæfileika til veldisuppbyggingar. Hann drýgði skólastyrkinn með því að selja ryksugur og skrifa ritgerðir fyrir skólafélagana. Hann ferðaðist með eigin bandi og spilaði um borð í skemmtiferðaskipum, en sneri sér loks að arðbærari viðskiptum.
Árið 1962 stofnaði Berlusconi sitt eigið byggingarfyrirtæki, Elinord, og hóf að skipuleggja og byggja íbúðabyggðir í nágrenni fæðingarborgar sinnar, Mílanó. Þrettán árum síðar, árið 1975, töldust fyrirtækin undir hatti fjárfestingafyrirtækis hans Fininvest vera 150.
Þessi orkumikli Ítali átti ætíð öfluga bandamenn innan ríkisstjórnarinnar, en árið 1994 lamaðist ítalska stjórnkerfið. Dómarar höfðu sett af stað aðgerðina Mani puliti, hreinar hendur, sem miðaði að því að hreinsa til í spilltum og mútuþægum flokkum ítalsks stjórnkerfis. Berlusconi ákvað nú að það væri bara eitt að gera í stöðunni; að sækjast eftir starfinu sjálfur.
Áfram Ítalía! Flokkur hans, Forza Italia, var allt eins mikil alþýðuhreyfing eins og skipulagður stjórnmálaflokkur. Jafnvel nafnið hafði verið fengið að láni úr boltanum: Áfram Ítalía!
Þessum síbrúna frumkvöðli, með snekkjuna sína, filmstjörnufraukuna og fallegu börnin, tókst feikivel að selja sig sem mann fólksins, mann sem hefði unnið fyrir sínu og gæti brotist í gegnum ítalskt skrifræði til hjálpar þjóðinni að verja auð sinn.
Og þetta gekk allt saman eftir eins og í draumi. Í kosningunum í maí 1994 varð Áfram Ítalía að stærsta stjórnmálaflokki Ítalíu og Berlusconi forsætisráðherra samsteypustjórnar.
Allt frá því Berlusconi hellti sér út í stjórnmálin þóttu hinir ýmsu hagsmunaárekstrar hans gagnrýni verðir. Þetta og háskalegt ástand hagkerfisins varð til þess að forsætisráðherrann neyddist til að segja af sér, aðeins 226 dögum eftir að hann hafði tekið embættið með trompi. En, fyrir vana og kannski ögn kaldhæðna stjórnmálaskýrendur ítalskrar refskákar var þetta bara business as usual.
Endar hann í útlegð eins og Craxi? Silvio Berlusconi forsætisráðherra hóf ferilinn sem dægurlagasöngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn, þar á meðal Bettino Craxi, sem var forsætisráðherra landsins 1983-87 og eyddi sjö síðustu árum ævi sinnar í útlegð í Túnis á flótta undan 14 ára fangelsisdómi. Á skömmum tíma varð Berlusconi umsvifamesti viðskiptajöfur Ítalíu og ríkasti maður landsins og lagði m.a. undir sig sjónvarpsstöðvar, svo að dagskrá þeirra minnir nú helzt á skemmtiatriði á ferjum og flóabátum. Kærurnar á hendur Berlusconi fyrir mútur, fjársvik o.fl. hafa hrúgazt upp, en honum hefur m.a. tekizt að beita pólitísku valdi til að aftra dómstólum frá því að sækja hann til saka. Hann gæti endað í útlegð eins og Craxi vinur hans.
- Þorvaldur Gylfason: Að gera hlutina í réttri röð. Fréttablaðið, 5. ágúst 2004.
SILVIO BERLUSCONI Drýgði skólastyrkinn með því að selja ryksugur og skrifa ritgerðir fyrir skólafélagana. Mynd: AP
Ég einn get bjargað þessu landi Berlusconi eyddi næstu árum í að koma hefðbundnara skipulagi á flokk sinn. Árið 2001 var hann aftur kominn í forsæti í krafti afburða kosningabaráttu. Það sem dreif hann áfram, sagði hann, var vitundin um að ég einn gæti bjargað þessu landi.
Il Cavaliere hefur að mestu haldið áfram starfi sínu frá því sem hann skildi við það í fyrri stjórn. Hefur hann barið af sér allar ásakanir um spillingu og mafíuvinskap og tök hans á ítalskri menningu eru enn með ólíkindum.
Flokksfélagar Berlusconis neita þeirri fullyrðingu að foringi þeirra sé haldinn stjórnunaráráttu. Antonio Martino útskýrir: Ef þú vilt nota völd þín þér til framdráttar, þá treður þú ekki upp framsviðs.
Kannski ekki, en á meðan Silvio Berlusconi viðheldur valdi sínu og víðtækri efnahagslegri stjórn munu persóna hans og gjörðir halda áfram að vekja upp spurningar um hans sérstöku tegund af leikhúsi stjórnmálanna.
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.