E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  HANDBÓK RÓMARFARA
Íþróttir & útivist
  Róm á sér marga fagra og stóra almenningsgarða. Þangað sækir fólk til að viðra sjálft sig og hundana
sína, sitja í skugga trjánna og lesa, skokka.

Róm er að sönnu græn borg; hvergi langt í stóra og skógi-
vaxna almenningsgarða, svo ekki sé minnst á jurtalífið sem þrífst innan hinna fjölmörgu en duldu húsagarða borgarinnar og á svölum og þökum:
Allt í blóma í Róma.



Helstu almenningsgarðarnir eru gamlir herragarðar sem heita Villa þetta eða hitt, kenndir við voldugar páfafjölskyldur er höfðu þar sumarhallir. Villa Borghese er þeirra þekktastur, en Villa Doria Pamphilj stærstur. Þangað sækir fólk til að viðra sjálft sig og hundana sína, sitja í skugga trjánna og lesa, blunda, kela.

Önnur útivistarsvæði eru t.d. á Janikúlumhæð, sem er önnur helsta hæðin á vesturbakka Tíber (hin er Vatikanhæð) og hvar best sést yfir miðbæ Rómar, og í tóftum paðreimsins mikla, Circus Maximus, sem var elsti og stærsti leikvangur Rómverja til forna. Völlur hans var rúmlega hálfur km að lengd en 80 m að breidd og fóru þar fram æsilegar keppnir tvíhjóla kappakstursvagna af því tagi sem fólk man eftir úr myndinni um Ben-Húr. Gott útivistarsvæði er jafnframt við hinn forna Appíuveg í umhverfi katakomba og fornminja og í minni görðum út um alla borg.

Helstu garðarnir
Villa Borghese liggur norðan Spánartorgsins fræga sem allir þekkja sem til Rómar hafa komið, en nær í vestur að Popolotorginu stóra. Frá torginu því getur maður gengið tröppur upp á Pinciohæð, þaðan er frábært útsýni, og svo er maður kominn inn í garðinn. Stutt er fyrir ferðamenn sem gista miðsvæðis að skella sér í lautarferð upp í Borghesegarð. Þar er að finna eftirlíkingu af grískum leikvangi þar sem hægt að skokka eða sparka bolta, lítinn dýragarð, tjörn og 19. aldar hof þar við, og fjölmarga spássi- og skokkstíga. Reiðhjól er hægt að leigja þarna og meira að segja hægt að skella sér á bak raunverulegum hestum. Innan garðsins eru svo tvö af þekktari söfnum Rómar, Borghesesafn og etrúskasafnið í Villa Giulia, áður sumarhöll Júlíusar páfa III., svo ekki ætti manni að leiðast.

Villa Doria Pamphilj
er stærsti garðurinn. Hraðbraut liggur um hann miðjan, en að öðru leyti er hann að öllu laus við mengun. Það er í eystri og stærri hlutanum sem aðalskokkgarð borgarinnar er að finna. Þar er falleg sumarhöll sem P. páfi létt byggja frænda sínum undir lok 18. aldar. Hún er nú nýuppgerð og hýsir safn og opinberar móttökur. í garðinum eru katakombur, en ekki opnar almenningi. Örstutt er úr Villa Pamphilj yfir á Janikúlumhæð, en það var á þessum slóðum sem Frakkum tókst að stöðva innrás lýðveldismanna 1849 og verja Páfaríkið falli enn um sinn. Uppi á háum fótstalli, efst á Janilúlumhæðinni situr herforinginn Garibaldi á fáki sínum og ristir í loftið með sverði sínu. Fyrir neðan stendur: Róm eða dauðinn.

Hvernig er best að ferðast um borgina? Lestu pistilinn
um samgöngur í Róm hér í Rómarvefnum.

Hvað viltu gera?
Ganga Varla þarf að hafa áhyggjur af því að maður gangi ekki nóg í Róm. Leigubílar í Róm eru dýrir, oft lengi að komast á milli staða miðbæjar vegna umferðar og svo er varla að það taki því að setjast upp í bíl - bærinn er ekki það stór. En fyrir utan dýra leigubíla þá er bara svo skemmtilegt að ganga um Róm að því má enginn sleppa; þröngar og bugðóttar göturnar, upp - allt í einu sér maður yfir borgina - og niður hæðir og síðan að villast svolítið og alltaf ... Hva!, hvaða rúst er þetta? ... vera að sjá eitthvað nýtt sem ekki segir frá í sögu- og handbókum. Þeim sem kjósa meiri gróðursæld og rými er bent á garðana.

Hjólreiðar Við fyrstu sýn, rétt eins og með stundun annarra íþrótta í borginni eldgömlu og þröngu, virðist sem ekki sé fýsilegt að stunda hjólreiðar um Róm. Rétt, og ekki. Varla er heilsusamlegt að hjóla um miðborgina, en vart verra en að mótorhjóla og það gera fjölmargir. Hins vegar er gaman gott er að hjóla um hina stóru garða borgarinnar, Appiu Anticu og víðar og stutt að fara. Reiðhjól er hægt að leigja í Villa Borghese sem og annarstaðar í borginni.

Strandlíf
Ef maður er magnylhvítur, eins og sagt er, bianco come una aspirina, þá er upplagt að skella sér á ströndina. Sjóböð er hægt að stunda meðfram öllum skaganum svo málið snýst um að rata á fallegustu ströndina næst borginni. Ostía er næst, nothæf, en ekkert augnayndi. Ef farið er norðar eða sunnar er maður kominn mitt í náttúruna.
Knattspyrna skipar stóran sess í dægurmenningu Ítala og því er óvitlaust að setja sig aðeins inn í málin. Lazio er knattspyrnulið héraðsins og hampaði ítalska bikarnum í fyrsta skipti í 40 ár er það lagði AC Milan að velli á Ólympíuleikvanginum í Róm í apríllok 1998. Aðalliðið er hins vegar Roma sem vann langþráðan Ítalíumeistaratitil árið 2001. Upplýsingar um leiki vikunnar er að finna í Roma c'è.

Skokk
Villa Doria Pamphilj er stærstur garðanna, sundurskorinn í miðju með hraðbraut. Það er í austurhlutanum sem aðalskokkgarð borgarinnar er að finna. Búi menn í miðbænum eða þar í kring er upplagt að skella sér upp í Villa Borghese. Önnur skokkvæn svæði: Circo Massimo, Þar sem áður var í fornöld veðhlaupavöllurinn Circus Maximus (þar átti Ben Hur að hafa háð einvígið við fjanda sinn á fereykisvagninum), Via Appia antica. Búi menn í Róm vestanverðri, nálægt Piazza Irnerio, er mælt með ágætum garði Villa Carpegna þar sem hægt er að hlaupa u.þ.b. ólympiskan hring (800 m.) og þokkalegu skokksvæði í Parco Pineto sem er stór garður og óræktaður, en helst er að skokka eftir troðningum uppi á hæðinni þaðan sem er ágætt útsýni. Rómarmaraþon er haldið síðasta sunnudag marsmánaðar ár hvert.

Útreiðar Hægt er að skella sér á bak litlum sem stórum hestum í Villa Borghese.

Ertu hlaupagikkur? Lestu þá um Rómarmaraþon
og Passatorehlaupið hér í Rómarvefnum.


Skelltu þér ...
Það er gráupplagt að skella sér í lautarferð í einhvern hinna fallegu almenningsgarða borgarinnar. En engin er lautarferð án girnilegs nestis og það er ekki málið í Róm, því hægt er að koma við í hvaða búð sem er sem selur álegg og brauð og biðja afgreiðslufólk um að útbúa fyrir sig samlokur og ekki má gleyma eins og einni léttvínsflösku, ávöxtum og vatni.

 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband