Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Tíu staðir sem koma þér í þráðbeint samband við hina fornu Róm
PANÞEON Það er bara möst. Eina fornrómverska byggingin sem varðveist hefur heil og tiltölulega ósnortin. Og ekki slæmt eintak. Sitja svo að kvöldlagi undir hitalampa með eitthvað gott í glasi á kaffihúsi á torginu framan við upplýst algyðishofið: það er draumi líkast.
KLEMENSARKIRKJA San Clemente: Kirkja á kirkju ofan og neðst er fornt Míþrasaraltari. Heimsókn í Klemensarkirkju gefur fornaldarsjúkum fullkomið kikk.
ENGILSBORG Castel Sant'Angelo, hið forna grafhýsi Hadríanusar keisara og síðar afdrep og varnarvirki páfanna. Mikilfengleg bygging og ekki skemmir frábært útsýnið yfir Tíber og miðbæinn.
SIGURBOGI KONSTANTÍNUSAR Póstkort frá 3ja áratugi 20. aldar með mynd af Konstantínusarboganum frá 4. öld e.Kr., en hann stendur mitt á milli Forum Romanum og Kólosseum.
PALATÍNHÆÐ Palatino, hæðin uppaf Forum Romanum. Þar bjuggu keisararnir um aldir og reistu sér hallir sem voru hver annarri glæsilegri.
KATAKOMBUR Le catacombe, fornir grafreitir kristinna manna á tímum Rómarveldis og því helgir staðir. Frægasta katakomban er kennd við heilagan Kallixtus (San Callisto) og er við Via Appia; ekki langur gangur þangað úr miðbænum.
FORUM BOARIUM Smáhofin við Forum Boarium (nautgripamarkaður til forna) kippa manni inní gamlan og horfinn tíma, en líka Bocca della veritá og Circus Maximus þar upp af og kannski líka Santa Sabina og útsýnið þaðan - allt í örstuttu göngufæri hvert við annað.
VIA APPIA Ganga aðeins út fyrir miðbæinn og feta hina fornu braut Appíuvegarins. Meðfram veginum eru forn grafhýsi stór og smá og svo leifar paðreims Maxentíusar frá 4. öld.
KÓLOSSEUM Tilkomumikið er það og svíkur ekki þegar innfyrir er komið og upp.
OSTÍA HIN FORNA Ostia Antica, hafnarborg fornu Rómar, stóð við mynni Tíber. Nú eru rústir borgarinnar innar í landinu og hafa varðveist nokkuð vel í mjúkum leirhjúpi framburðar árinnar - svona svipað og í Pompei. Stutt að fara frá Róm og hægt að taka lest.
FORUM ROMANUM Síðast en ekki síst: Rölta um máða steina hinnar eldgömlu Rómar í Forum Romanum. Það er alveg ókeypis (síðast þegar ég vissi) og um að gera að gefa sér góðan tíma til að átta sig á því hvað var hvar og hvernig það leit út.
Lestu um helstu fornminjar Rómar hér í Rómarvefnum.
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.