E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  HANDBÓK RÓMARFARA
Róm, þegar þú vilt ...

    STEMMNINGU ...
  • Komdu þér að kvöldlagi fyrir á einu af útikaffihúsunum á torginu framan við upplýst algyðishofið Panþeon: það er draumi líkast. Hafðu eitthvað gott í glasi - ef kalt er úti sér hitalampinn um að ylja þér ... og kakóið.
  • Röltu um gömlu Róm seint um kvöld, t.d. Campo de' Fiori hverfið; enginn á ferli nema þú í þessari öldnu borg og engar áhyggjur af rómverskum ribböldum, þeir eru sofnaðir.

     
      ALDAMÁÐIR STEINAR Fornir götusteinar sem enn er hægt að leggja undir fót á Appíuvegi, Appia antica, rétt utan við miðborg Rómar.
    MAT Á LABBINU ...
  • Renndu í einn vænan baccalá saltfisksbita á Dar filettaro a Santa Barbara á Largo dei Librari, 88, rétt við Flórutorg (opið á kvöldin, lokað sunnudaga). Hægt að taka með sér eða setjast inn.
  • Smakkaðu oft á bitapízzum (pizza al taglio), bara smásneið í einu og alltaf eitthvað nýtt. Gera það sama með ísinn; fá sér oft, en bara eina-tvær kúlur í senn. Á bitapizzeríunum er líka hægt að fá supplì sem er venjulega dulítill mozzarelluostbiti hjúpaður hrísgrjónum í tómatsósu, velt upp úr raspi og djúpsteikt; algjört hnossgæti.

    PRÓFA EITTHVAÐ
    ÖÐRUVÍSI ...
  • Blandaðu geði við Trasteveringa og nærsveitunga á Bar San Callisto sem er afskaplega ódýr og afslappaður bar á samnefndu smátorgi rétt við Piazza Santa Maria in Trastevere.

    ALLT ÓKEYPIS ...
  • Líttu við í sem flestum kirkjum - tekur engan tíma að skreppa inn og út og svo eru þær svalar og fínar. Kirkjur Rómar teljast margar til helstu listasafna borgarinnar; þ.e. verkin sem þau geyma eða byggingin sjálf og oft hvort tveggja.
  • Strollaðu um miðbæinn í rólegheitum: Stoppa, skoða, horfa upp, horfa niður, kíkja inn í húsagarða, taka eftir skjöldum og öðrum merkingum páfa liðinna alda á húshornum og öllu hinu sem gerir Róm að einstakri borg.

    SOPA & ÚTSÝNI ...
  • Engilsborg, Castel Sant' Angelo, er vel þess virði að heimsækja, þó ekki væri nema fyrir kalda birru í góðu veðri uppi á svölunum með frábært útsýnið yfir Tíber og miðbæinn.
  • Ef peningarnir eru eitthvað að þvælast fyrir þér er upplagt að koma þeim í lóg á hóteli Hassler við Spánartorg; þar efst uppi er rómaður veitingastaður sem státar af ægifögru útsýni yfir borgina.
  • Við hin komum kannski við í alimentaríu og kaupum eina freyðivín eða svo og röltum okkur upp á Janikúlumhæð. Þar er frábært útsýni yfir borgina á fallegum degi og enginn kippir sér upp við það þótt maður dragi tappa úr flösku.

    BREGÐA ÞÉR ÚTFYRIR ...
  • Gakktu svolítið út fyrir bæinn ef tími gefst til, t.d. um hinn forna Appíuveg og endilega að nesta í paðreimi Maxentíusar frá 4. öld. Það gerir alveg Rómarferðina.
  • Röltu upp á Janikúlumhæð, eða taktu leigara þangað, og njóttu frábærs útsýnis yfir borgina. Svo göngutúr niður hæðina niður í Trastevere og koma jafnvel við í San Pietro in Montorio og skoða Tempietto arkitektsins Bramante frá árinu 1502.
  • Komdu þér út úr borgarskarkalanum og inn í grösuga og víðfeðma almenningsgarða borgarinnar. Þetta eru gamlir herragarðar sem heita Villa þetta og hitt, kenndir við voldugar páfafjölskyldur er höfðu þar sumarhallir. Villa Borghese er þeirra þekktastur, en Villa Doria Pamphilj stærstur. Þangað sækir fólk til að viðra sjálft sig og hundana sína, sitja í skugga trjánna og lesa, blunda, kela.

    NIÐUR, NIÐUR ...
  • Katakomburnar eru fornir grafreitir kristinna manna á tímum Rómarveldis og því helgir staðir. Frægasta katakomban er kennd við heilagan Kallixtus (San Callisto) og er við Via Appia - ekki svo langt að ganga þangað úr miðbænum.
  • Klemensarkirkja, San Clemente: Kirkja á kirkju ofan og neðst er fornt Míþrasaraltari. Heimsókn í Klemensarkirkju gefur fornaldarsjúkum fullkomið kikk.

    UPP, UPP ...
  • Helstu útsýn er að hafa frá Janikúlumhæð, Monte Mario, Avantínhæð (hjá kirkju Söntu Sabínu) og frá Pinciogarðinum fyrir ofan Popolotorg. Maríófjall er hæsta hæðin í borginni (heitir enda fjall) og þar er starfrækt stjörnuskoðunarstöð. Þaðan er gott útsýni suður yfir alla borgina, hægt að fá sér kaffi á bar eða snæða á fínum veitingastað. Auðvelt á að vera að taka strætó þangað frá bænum.
  • Frábært útsýni er að hafa ofan úr hjálmi Péturskirkjunnar. Þeir sem ekki treysta sér upp þrönga gangana geta látið sér nægja að fara upp á þakið, sem er áfangi á leiðinni upp í hvolfþakið. Þar eru salerni, minjagripaverslun, símar og póstkassar ... og útsýn all góð.

    VESTRÆNT OG VONT ...
  • Það er náttúrlega algjört svindl og í raun menningarglæpur að fá sér McDonald's í Róm. En ef brotaviljinn er einbeittur er upplagt að fá sér borgara og bjór á litlum stað við Rotondatorg, beint á móti Panþeon hofinu; bjórinn fæst ekki ódýrari á þessu torgi en einmitt þarna á Makka dóna!
 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband