E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  HANDBÓK RÓMARFARA
Samgöngur í Róm
  Almenningssamgöngur borgarinnar eru fléttaðar
úr fjórum þáttum; strætisvögnum, sporvögnum,
jarðlestum og borgarlestum

Strætisvagnar og sporvagnar eru helstu almenningsfarartækin miðsvæðis í Róm, þar eð jarðlestirnar ganga aðeins á tveimur línum en borgarlestir þjóna útbæjum Rómar. Regla númer eitt þegar almenningssamgöngur Rómar eru notaðar er að stimpla alltaf miðann sinn, það er um leið og komið er inn í strætisvagninn, áður en gengið er niður í jarðgöng jarðlestanna og áður en farið er um borð í venjulegar lestir.

Miðinn Strætómiðar fást hjá tóbakssölum (tabacchi), í sumum blaðasöluturnum og í miðasjálfsölum ATAC. Einn og sami miðinn gildir fyrir strætis- og sporvagna og jarðlestir. Þægilegast er að kaupa miða sem gildir í 75 mínútur og er þá hægt að ferðast með eins mörgum strætis- og sporvögnum og þarf innan þess tíma og nota einu sinni til þess að komast niður í jarðlestirnar. Athugið þó að ef farið er upp úr jarðlestargöngunum og svo niður aftur þarf að nota annan miða þótt ekki séu liðnar 75 mínútur, því tími þessi á ekki við um jarðlestirnar. Hægt er að fá ókeypis leiðarkort strætis- og sporvagna og neðan- og ofanjarðarlesta í upplýsingaturnum borgarinnar og víðar.

Strætis- og sporvagnar
Rómaborg rekur leiðakerfi strætis- og sporvagna (autobus og tram). Strætisvagnar ganga út um alla borg, en sporrarnir renna helst um Prati- og Trasteverehverfi. Á biðstöðvum strætis- og sporvagna eru gul skilti sem á stendur Fermata og þar eru upptaldir, undir hverju vagnnúmeri, helstu viðkomustaðir vagnsins á leið sinni milli upphafs- og endastöðvarinnar, Capolinea. Reglum samkvæmt er farið inn í vagninn að aftanverðu og miðinn stimplaður þar í appelsínugulum stimpli, sem ósjaldan er bilaður. Þeir sem eru með stimplaðan miða geta farið inn að framan. Svo er farið út um miðjan vagninn.

Oft er mikill troðningur í rómverskum strætisvögnum svo fólk fer inn og út um þær gáttir sem það kemst. Látið ekki troðinn vagn út að dyrum of mikið á ykkur fá, það er að líkindum pláss fyrir einn eða tvo í viðbót sýni þeir sömu ákveðni og þeir innfæddu. Og ekki er ráðlegt að bíða eftir öðrum mannfærri; vagninn sá kemur að líkindum seint og trúlega jafn troðinn. Í slíkum troðningi getur verið efitt að stimpla miðann sinn, en þá er bara að virkja samfarþega sína og láta hann ganga að stimplinum.

Úti að aka?
Umferðarmenning Rómverja er víðþekkt og ekki af góðu. En hún er ekki svo slæm og hún virkar ágætlega þótt hún sé ólík þeirri sem við eigum að venjast - vegfarendur eru hér í sambandi hver við annann og langt frá því að vera „úti að aka“. Meira

Aðal ferðamannavagninn er 64 sem gengur á milli Péturstorgs og aðaljárnbrautarlestarstöðvarinnnar Termini. Sá vagn gengur tíðast allra vagna í borginni, oft þrír, fjórir saman í kippum, en alltaf fullur. Þessi vagn er að vonum helsti starfsvettvangur vasa- og töskuþjófa. Næturvagnar keyra í öll hverfi borgarinninnar og einnig út til Ostíu á hálftíma fresti yfir nóttina, þ.e. á heilum og hálfum tíma frá miðnætti til kl. 5,30, þegar dagvaktin tekur við. Í miðbænum ganga smáir en knáir rafvagnar 116, 118, 119 á milli helstu hverfanna.

Sporvagn númer 8 gengur frá Largo Torre Argentina í miðbænum, beint framan við Argentínuleikhúsið (Teatro Argentina), og niður í Trastevere. Ætli maður sér hins vegar bara á torgið Piazza Santa Maria in Trastevere þá getur verið fljótlegra að ganga, enda stutt á milli þessara torga.

Jarðlestir - Metro
Niðurgangarnir í jarðlestirnar eru auðkenndir með hvítu M á rauðum grunni. Metrólestirnar renna fram og aftur um borgina á tveimur línum A og B. A gengur norðvestur - suðaustur, það er, frá Pratihverfinu norðan megin Vatíkansins og suðaustur í Cinecittá bíóborgina (og aðeins lengra). B gengur norðaustur - suðvestur, það er, frá hverfunum í norðaustanverðri borginni, Piazza Bolognia, um hverfi Rómarháskóla (Cittá Universitaria) og suðvestur í EUR. Á lestarstöðinni Termini skarast svo línurnar tvær.

Það getur verið freistandi að sleppa því að stimpla miða þegar þröngt er í vögnunum eða maður hefur hreinlega gleymt því að kaupa hann. En, miðinn er ódýr en sektin há þegar miðaeftirlitsmennirnar birtast óforvarendis. Eftirlitsmenn þessir eru frekar sjaldséðir í stætisvögnum, en verða tíðum á vegi manns þegar gengið er niður í jarðgöngin. Skyndiverkföll eru tíð á Ítalíu og sérstaklega í samgöngugeiranum. Þá eru það lestirnar eða strætisvagnarnir sem stöðvast einn dagspart eða svo. Venjulega er skýrt frá tilstandandi verfallsaðgerðum í fjölmiðlum með nokkurra daga fyrirvara.


Borgin útboruð
Katakombur liggja út um alla borg og segir þjóðsagan að hægt sé að komast allra sinna ferða um jarðgöng þeirra. Því miður eru þeir samgönguhættir ekki eins góðir í veruleikanum. Hvað veldur? Meira
Termini er aðaljárnbrautarlestarstöð Rómar, staðsett austanvert þar sem má kalla miðsvæðis í borginni. Við Termini er endastöð margra strætisvagna og þar skarast metrólínurnar tvær. Fjöldinn allur af strærri og smærri hótelum er í nágrenni lestarstöðvarinnar og mörg í ódýrari kantinum. Upplýsingar um lestarferðir fást í s. 147 888 088 og getur maður valið um tímana gefna upp sjálfvirkt eða að tala við manneskju (þá svarar maður „No“). Lestarstöðin dregur nafn sitt af böðum (terme) Díókletíusar keisara sem eru þarna rétt hjá.

FJÖLMIÐLAR SEGJA ....
Mynd af Mbl.is
Tíberfljót í Róm. Báturinn Rea Silvia á reynslusiglingu. Engilsbrú og Péturskirkja í baksýn.
Mbl.is 20.2.2003
Umferðarteppan
flutt út á Tiber

Bílaumferðin um götur Rómaborgar er oft á tíðum ógnvekjandi og það þykir ekki tiltökumál þótt ökutæki lendi stundum í smá „stimpingum" og fái rispur og dældir. Þeir sem starfa við ferðaþjónustu í borginni ætla að gera tilraun í sumar með áætlunarsiglingar um ána Tíber sem rennur í gegnum borgina, og draga þannig aðeins úr umferðinni um göturnar og bjóða ferðamönnum upp á útsýnissiglingu í leiðinni. Á myndinni sést einn bátanna sem notaður verður í reynslusiglingu um Tíber með Péturskirkjuna í baksýn. Báturinn heitir Rea Silvia, eftir móður tvíburanna Rómulusar og Remusar sem stofnuðu Rómaborg samkvæmt þjóðsögunni á áttundu öld fyrir Krist.

Aðrar samgönguleiðir

Leigubílar í Róm eru ekki of margir, ekki alltaf besti kosturinn og langt í frá sá ódýrasti. En leigubílstjórarnir eru flestir kurteisir og rata vel. Radio Taxi s: 06 49 94. Helstu leigubílalalægin eru á Feneyjatorgi, Piazza Venezia (rétt við Trajanusarsúluna), á torginu Largo Torre Argentina, við torgið Piazza Risorgimento hjá Vatíkaninu, Barberinitorg, Piazza Barberini, neðan við Via Veneto, við Lýðveldistorg, Piazza Repubblica, og víðar.

Siglingar Tíberfljót hefur verið vannýttur samgöngukostur. Á sumrin er boðið upp á siglingu um Tíber. Tourvisa Incentive Travel s: 4452484, 4450722. Tæpar 2 klst. Frá Ponte Umberto I, Lungotevere Tor di Nona. Alla daga nema mán; 10:15 og 12:45 með mat.

Mótor- og reiðhjólaleiga Hægt er að leigja reiðhjól og vespur á ýmsum stöðum í borginni fyrir sanngjarnan pening, allt frá einni klst. upp í nokkra daga. Eina gamla reiðhjólaleigu veit ég um á Navónutorgi.

Bílaleigur eru víða um borgina og ráðlegt að kynna sér bestu kjörin hverju sinni. Vert er að hafa í huga að bensínið er síst ódýrara á Ítalíu en hér og að bílþjófnaðir eru afar algengir í borginni. Heilræði til bílstjóra: Vertu vakandi og ákveðinn bílstjóri!

Útsýnisferðir 110 er útsýnisstrætó sem gengur frá Termini. City Fly, s: 068864 1441 flýgur alla daga yfir borgina og kostar um € 50 á mann.

Til og frá flugvelli
Hægt er að fljúga til Rómar, sigla, keyra eða koma með lest. Þeir sem koma fljúgandi geta tekið hraðlest sem gengur á milli aðaljárnbrautarstöðvarinnar Termini og Fiumicino flugvallar á um klukkustundar fresti og tekur ferðin um hálftíma. Fargjaldið er um 600 kr. (£ 15.000) - muna að stimpla miðann áður en farið er um borð. Annars er að taka leigubíl og kostar allt að 3.000 kr. (£ 75.000). Leigubílar bíða rólegir í röð úti fyrir, en varast skal að taka sér far með þeim vafasömu leigubílstjórum sem reyna að veiða farþega í bíla sína innan sem utan flugstöðvar.

Á heimleið er upplagt að nýta sér þjónustu Airport Shuttle (s. 0633 83221) fyrir sanngjarnt verð, en 65.000 £ kostar fyrir einn eða fleiri út á völl á fínni bíl og ekkert þarf að borga aukalega. Þurfi að sækja farþega á tvo staði bætist við 15.000. Fyrir tvo eða fleyri með skutlu kostar 28.000 £ á mann. Panta þarf með sólarhrings fyrirvara og töluð er enska. Lestarstöðin Termini er ekki langt frá miðbænum og þaðan getur maður komist hvort tveggja með strætó eða metró niður í bæ.

Hvar er hægt að fara í lautarferð í Róm, skokka, synda?
Lestu um útivist í Róm hér í Rómarvefnum.
 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband