Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Róm býður upp á tvenns konar póstþjónustu, annars vegar ríkispóstinn og hins vegar páfa- póstinn, og er önnur þjónustan snöggtum betri.
Sími Þótt almenningssímar séu hvarvetna á undanhaldi vegna farsíma sem allir eiga í dag er samt vert að geta þar nokkuð um. Símar til almenningsnota eru víða um borgina og oft inni á kaffibörum. Flestir taka þeir aðeins símakort, enda þægileg í notkun og fást hjá tóbakssölum. Hægt er að fá bréf send á pósthúsið við San Silvestrotorg. Hringt er í 12 fyrir upplýsingar, en í 170 og ýtt á 2 til að fá samband við enskumælandi þjónustu til að biðja um collect símtal.
Símbréf Helst að finna faxþjónustu í ritfangaverslunum og á fjölritunarstofum (oft á sama stað). Venjulega vel merkt.
Netið Netkaffihúsum fer fjölgandi í Róm, en helst er þau að finna á og nálægt háskólasvæðinu sem er á milli Termini lestarstöðvarinnar og kirkjunnar San Lorenzo utan múra. Þeir sem nota fartölvur gætu þurft að endurstilla innhringibúnaðinn vegna annarrar sónartíðni símans.
Póstur Í Róm eru tvær póstþjónustur og er önnur snöggtum betri. Hér er sérstaklega mælt með því að notuð sé póstþjónustu Páfagarðs, Posta Vaticano, vegna þess að hún er í senn þægilegri og fljótlegri. En, hafa skal í huga að aðeins er hægt að notfæra sér Vatíkanspóstinn þegar verið er að senda bréf eða litla pakka (hámark 2 kg) frá Ítalíu. Send bréf og pakkar innan landsins eða fengnir fara um hendur ítölsku póstþjónustunnar, Poste Italiane. Athugið að nota þarf frímerki frá Vatíkaninu á póst sem settur er í póstkassa þess.
Pósthús Aðalpósthús miðbæjarins er við Piazza San Silvestro, en inn á það torg er hægt að ganga annað hvort frá Via del Corso eða Via del Tritone. Þangað er hægt að láta senda sér bréf og sækja, hafi maður ekki fast aðsetur í borginni. Pósthús Vatíkansins er á Péturstorginu, í súlnagöngunum beggja megin við kirkjuna. Þar er þjónustan öllu þægilegri en hjá póstþjónustu Ítalíu, enda starfsfólk vant því að eiga við útlendinga.
Frímerki Umslög, kort og frímerki ítölsku póstþjónustunnar fást hjá öllum tóbakssölum, en frímerki Vatíkansins fást aðeins í Páfagarði og er þá þannig frímerktur póstur settur í bláa Vatíkanspóstkassa sem eru við Vatínkanið og sumstaðar um borgina.
Póstkassar Póstkassar ítölsku póstþjónustunnar eru út um alla borg, rauðir á lit, og setur maður bréfin sem eiga að fara út úr landinu í hólfið Per tutti i altri destinazioni. Póstkassar Páfapóstsins eru hins vegar bláir að lit og á færri stöðum í borginni fyrir utan Péturstorgið; t.d. við Piazza Barberini sem er við rætur Via Veneto og á Piazza S. Marco við Feneyjatorg.
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.