E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  HANDBÓK RÓMARFARA
Gott að vita

Til Rómar ...
Róm var á meðal fyrstu áfangastaða í íslensku millilandaflugi. Ekki hefur verið flogið beint til Rómar í áætlunarflugi hin síðari ár, en einstaka ferðaskrifstofur hafa boðið upp á flug þangað, til Verónu, Rimini eða Mílanó og oft fyrir skaplegt verð.

... Með flugi Í Róm eru tveir alþjóðlegir flugvellir. Flughöfnin Leonardo da Vinci er í Fiumicino, um 30 km suðvestur af borginni. Þessi helsti flugvöllur borgarinnar er betur þekktur sem Fiumicinovöllur og þar fer um mest af áætlunarfluginu. Hinn völlurinn er Ciampino suðaustan borgarinnar og þar lenda einkum leiguflugvélar. Þegar lent er á Fiumicinoflugvelli er hægt að velja um hraðlest eða leigubíl til Rómar. Fargjaldið með lestinni miðað við tvo er tæplega helmingurinn af því sem borga þarf fyrir leigubíl inn í miðborgina og oft minna. Leigubílar bíða rólegir í röð úti fyrir, en varast skal að taka sér far með þeim vafasömu leigubílstjórum sem reyna að veiða farþega í bíla sína innan sem utan flugstöðvar.

... Með lest Lestarstöðin Termini er ekki langt frá miðbænum og þaðan er hægt að komast hvort tveggja með strætó eða metró niður í bæ. Við Termini er endastöð margra strætisvagna og þar skarast metrólínurnar tvær. Fjöldinn allur af stærri og smærri hótelum er í nágrenni lestarstöðvarinnar og mörg í ódýrari kantinum. Til þess að komast strax niður í gamla miðbæinn er auðveldast að taka vagn númer 64 og fara t.d. út á Argentínutorgi, Largo Torre Argentina, ganga upp Via di Torre Argentina og þá er maður kominn að Panþeon og stutt í Navónutorg, Campo de'Fiori o.s.frv. Þeir sem vilja skella sér beint upp á Péturstorg taka vagninn hins vegar alla leið eða metró A að Ottaviano / S. Pietro. Upp á Spánartorg kemst maður með metró A og fer út á Spagna.

Sjá nánar um hraðlestina frá flugvellinum, leigubíla,
lestir og annað í pistlinum um samgöngur.

Ratað um Róm
Gott er að taka mið af tveimur helstu götum miðbæjarins sem gagnast manni eins og tveir ásar. Lárétti ásinn er þá Corso Vittorio Emanuele sem liggur frá ánni í vestri og austur gegnum gamla miðbæinn, um torgið Largo di Torre Argentina og næstum því að Feneyjatorgi. Lóðrétti ásinn er hins vegar Via del Corso sem liggur norðan frá Popolotorgi og suður á Feneyjatorg. Meira

Tíminn
Klukkan á Ítalíu er einni klst. á undan þeirri íslensku yfir vetrarmánuðina og tveimur yfir vor og sumar. Síðasta sunnudag í mars er klukkunni flýtt um eina klukkustund á Ítalíu sem og á öllu meginlandi Evrópu og er þá klukkan tveimur klst. á undan þeirri íslensku. Síðasta sunnudag í október er klukkunni seinkað um eina klst. og er þá klukkan einni klst. á undan þeirri íslensku. Þess má geta að tímatal vort er grundvallað á almanaki því sem gefið var út í Róm á því Herrans ári 525 og hefst árið 1 eftir Krists burð.

Upplýsingaveitur
  • Á nokkrum stöðum um bæinn eru staðsettir grænir upplýsingaturnar fyrir ferðamenn og þar hittir maður fyrir enskumælandi starfsmenn. Þar fást upplýsingabæklingar um hvað er á seyði í borginni. Hins vegar ber að taka það fram að þarna hafa því miður fengist heldur takmarkaðar upplýsingar.
  • Termini lestarstöðin: Þar er upplýsingamiðstöð varðandi söfn, fornminjar og leiðsögn.
  • Á heimasíðu Rómarborgar er ýmislegt að finna:
    - www.comune.roma.it
    - www.capitolium.org
Gjaldeyrir
Gjaldeyrisbúðir (cambio, exchange) eru víða um miðbæinn, en sjaldnast arðvænlegar í viðskiptum. Fyrrum voru slegnir gullpeningar sem giltu hvar sem gull var til einhvers metið; nú gilda gullkortin alstaðar. Hann var fyrrum kallaður rómarkostur kostnaðurinn við að ganga suður.
Hraðbankar (bancomat) sem taka debet- og krítarkort eru víða, en ávallt skal þess gætt að vélin sé í lagi.
Greiðslukort Flestar stærri verslanir og margar smærri taka krítar- og debetkort og margir (dýrari) veitingastaðir. Best er þó að hafa skotsilfur alltaf handbært.

Lestu um evruna hér í Rómarvefnum.

Öryggi
Almennt má segja að maður geti gengið sallarólegur um miðbæjargötur Rómar á nóttu sem degi. Hér sem annarstaðar skal þó gætt allrar varúðar. Róm telst hafa lægstu glæpatíðni borga á Ítalíu, þrátt fyrir að vera þeirra stærst. Sérstaklega er ástandið gott í miðborginni og er að líkindum vegna þeirrar miklu öryggisgæslu sem er um stofnanir og stjórnarbyggingar bæjarins og menningarverðmæti. Hringdu í 112 í neyð.

Þjófnaðir Ofbeldisrán eru sem betur fer fátíð í borginni, en vasa- og töskuþjófnaðir algengir. Smáþjófnaðir þessir fara aðallega fram þar sem troðningur er mikill, s.s. í strætis- og sporvögnum og jarðlestum, og við helstu ferðamannastaðina. Tekið skal fram að öllu lauslegu er stolið innan og utanklæða ferðamannsins. Gleraugu og pennar í brjóstvasa eru auðveld bráð fingralöngum, en vinsælust eru að sjálfsögðu seðlaveskin og þjófarnir telja það ekki eftir sér að sækja þau þangað sem eigandi þeirra telur þau trygg; í innanívasa, ofan í tösku, o.s.frv. Hafið varann á ykkur, en þó ekki svo yfirdrifinn að spilli fyrir ánægjunni af borginni.

Lestu um listina að svindla í pistlinum
um Svik og pretti hér í Rómarvefnum.

Líkami og sál
Lyfjabúðir Farmacia - lyfjabúðir er víða að finna og þekkjast á grænum krossi.
Neyðarnúmer 112
Messur Páfinn messar frá skrifstofuglugga sínum við Péturstorg um hádegið nánast á hverjum sunnudegi, að því gefnu að hann sé í bænum. Þar að auki messar hann innandyra á miðvikudagskvöldum, en þarf að panta. Upplýsingar m.a. að hafa í Roma c'è.

Þegar náttúran kallar
Salerni kaffi- og veitingahúsa eru oft sóðaleg en þó nothæf. Sjaldnast er nokkurt samband á milli útlits veitingastaðar og þess salernis sem hann býður gestum sínum upp á. Öruggast að hafa ávalt snýtibréf meðferðis. Öllum á að vera frjálst að nota salerni kaffibara og veitingahúsa án þess að kaupa veitingar í staðinn, en sjálfsagt er að nota ferðina og fá sér einn stuttan kaffi.

Útsýni
110 er útsýnisstrætó sem gengur frá Termini, en í útsýnisflug er hægt að komaset með City Fly, s: 068864 1441. Flýgur alla daga yfir borgina og kostar £ 95.000 á mann.

Lestu meira um útsýni hér í Rómarvefnum.

Listasöfn
Alla jafna kostar um 5-6 € inn á söfnin. Afsláttur oft veittur handhöfum stúdentaskírteina (ISIC) og/eða þeim sem stunda nám í listum eða listasögu og geta framvísað vottorði þar um. Ókeypis fyrir yngri en 18 og eldri en 62. Athuga að söfnin eru velflest lokuð á mánudögum og víða aðeins opið fram að hádegishléi (13,30) á sunnudögum. Þó er afgreiðslutími safna æði misjafn.

Áður en safn er heimsótt er vert að muna ...

  • að athuga hvort safnið sé ekki örugglega opið,
  • að gera ráð fyrir góðum tíma til að skoða sig um og njóta listaverkanna og ekki síður byggingarinnar sem hýsir þau,
  • að í Vatikansafnið er ókeypis síðasta sunnudag hvers mánaðar.
  • Söfnin á netinu www.comune.roma.it/cultura/italiano/
    musei_spazi_espositivi/musei
Ræðismenn
Ræðismaður Íslands í Róm Sig. Larocca, Consolato Generale della Repubblica d'Islanda di Roma, Via Flaminia 441, s. (+0039) 06323 1840, fax: (+0039) 06323 1468. Skrifstofan er til húsa við norðurenda hins gamla Flaminiovegar, nánast við Milviobrú. Best er að taka strætó á Mancinitorg þar rétt hjá eða sporvagn frá Popolotorgi sem gengur upp Flaminioveg.
Ræðismaður Ítalíu á Íslandi Pétur Björnsson, Klapparstíg 27, Reykjavík, s. 562 4042.
Genúa Maria Cristina Rizzi, Piazza della Vittoria 14, 16121 Genova. Eftir samkomulagi, s. (+0039) 10 25 25 86.
Mílanó Olga Clausen Preatoni, Via Andera Maffei 1, 20135 Milano. Eftir samkomulagi, s. (+0039) 2 55 19 53 87.
Tórínó Guiseppe Storaci, Via Carcano 26, 10153 Torino. Alla virka daga kl. 9-12 og 15-18 og eftir samkomulagi, s. (+0039) 11 248 5238.

 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband