E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  HANDBÓK RÓMARFARA

Gisting

  Gistingu er víða að hafa í Róm og af ýmsu tagi,
eins og gera má ráð fyrir í heimsborg: Lúxus-
hótel við via Veneto eða inn fyrir kl. ellefu í
klausturgistingu - þitt er valið.

Hótel
Miðað við tveggja manna herbergi þá kostar hótelherbergi í gamla bænum frá £ 250.000 en aðeins utar frá £ 150.000. Í nágrenni lestarstöðvarinnar Termini eru ódýrari hótel og gistihús. Á lestarstöðinni er stjálfstætt rekin skrifstofa sem á að geta hjálpað við að finna hótel samdægurs. Hægt er að bóka hótel að hvaða gerð sem er gegnum Hotel Reservations s: 699 1000 mill kl. 7 og 22, ókeypis þjónusta og á ensku ef vill.

Leitað á netinu
  • Á vefsíðu hótela í Róm, Italy Hotel Reservation:
    www.tabnet.venere.it/globalsearch.html
    setur maður sjálfur inn forsendurnar (verð, staðsetning, stærð, með eða án baðh. osfrv.) og fær svo niðurstöðu leitarinnar. Kosturinn við þetta líka er að maður fær uppgefin netföng hótelanna og þá er nú eftirleikurinn auðveldur að verða sér út um upplýsingar og panta.
  • The Internet Tourist Guide of Italy: www.itwg.com
  • Bandaríska ferðamiðlunin InItaly: www.initaly.com býður t.d. íbúðir á fallegum stöðum í Róm fyrir sanngjarnan pening, t.d. við Farnesetorg á $160.
Beddi og brauð
BBPlanet er ítalskur vefur sem býður upp á mikið úrval gististaða á Ítalíu.
Fljótt á litið virðast þetta vera vönduð herbergi sem hér er boðið upp á og þ.a.l. í dýrari kantinum miðað við bedda og brauð: www.bbplanet.it

Bed & Breakfast Italia skrifstofa á Corso Vittorio Emanuele II, 282, s: 06687 8618, símbréf: 06687 8619, md4095@mclink.it - Bjóða upp á eins manns herbergi frá 50-85.000 £ og tveggja manna frá 95-16.000 - Ath! lágmark tvær gistinætur.

Klausturgrið
Víða um Ítalíu er hægt að fá gistingu í klaustrum og er svo einnig í Róm. www.sixtina.com

Leiga
Hægt er að fá leigðar íbúðir miðsvæðis í vikutíma fyrir um 40.000 kr., jafnvel lengur og fyrir minni pening. Þetta ætti að vera vænn kostur ef um fjóra er að ræða. Sjá tímaritið Wanted in Rome og www.wantedinrome.com

Nú, ef menn eru listamenn má reyna að komast að í listamannaíbúð Norræna rithöfundasambandsins í Róm. Sjá Rithöfundasambandið www.rsi.is > www.rsi.is/10.3.html

Húsnæðisleit
Það segir sig sjálft að ætli maður að setjast að í borginni um lengri eða skemmri tíma verður að gefa sér tíma í að finna íbúð eða herbergi til leigu og því verður maður að vera búinn að útvega sér tímabundna gistingu meðan á leitinni stendur. Ekki á að vera of mikið mál að finna sér herbergi að leigja með öðru ungu fólki (sjá leiðir til þess hér að neðan) og kostar herbergið að meðaltali um 20.000 kr. (e 250), þó hægt að finna ódýrara. Íbúðir kosta svo um og yfir 40.000 kr. (e 500) og þá helst að finna utan við miðborgarkjarnann, ef maður vill dulítið andrými. Svo er reynandi að hafa upp á námsfólki í borginni sem e.t.v. er tilbúið að leigja út íbúð sína yfir sumarið. Helstu leiðir til að verða sér út um húsnæði til leigu eru eftirfarandi.
Porta Portese smáauglýsingablaðið kemur út á þriðjudögum og föstudögum og eru þar íbúðir auglýstar til leigu (affitasi) og ekki allar í Róm. Einnig á www.portaportese.com, en þar er hægt að setja inn ókeypis auglýsingu í blaðið.

Wanted in Rome er tímarit enskumælandi Rómarbúa og kemur út hálfsmánaðarlega. Þar er að finna eitt og annað um hvað er á seiði í borginni og fréttaskýringar, en smáauglýsingadálkar blaðsins eru nokkuð góðir hvað varðar húsnæðisauglýsingar. Hægt er að auglýsa ókeypis eftir íbúð í blaðinu ef maður sendir örstutta auglýsingu í tölvuósti: wantedinrome@wantedinrome.com. www.wantedinrome.com

Il Messaggero Íbúðaauglýsingar er að finna í fimmtudags- og sunnudagsblaði þessa Rómardagblaðs. www.ilmessaggero.it


Affitti er vikublað sem helgað er leiguhúsnæði.
Svo ætti skólafólk að tala við eða koma við hjá þeim skóla þar sem það ætlar að hefja nám og athuga hvort þar sé ekki boðið upp á e.k. húsnæðismiðlun.

Sjá nánar um pappírsmálin er varða lengri
dvöl í borginni í pistlinum Búið í Róm.


Húsnæðisskipti
Ef þú býrð á Íslandi og ert að leita þér að húsnæði á Ítalíu eða öfugt; býrð á Ítalíu og vantar húsnæði á Íslandi í skiptum fyrir þitt - þá er Rómarvefurinn kjörinn vettvangur til að óska eftir slíku. Hafðu samband.


 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband