E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  HANDBÓK RÓMARFARA
Fjölmiðlar & upplýsingarit
  Helstu dagblöð ítölsk eru Mílanóblaðið Corriere della
Sera, Rómarblaðið Il Messaggero og La Repubblica.
L'Osservatore Romano er hins vegar málgagn páfastóls.

Fjölmiðlar á ítalíu

DAGBLÖÐ
Helstu dagblöð ítölsk eru Mílanóblaðið Corriere della Sera, (Kvöldpósturinn, stofnað 1876), Rómarblaðið Il Messaggero (Boðberinn, stofnað 1878) og La Repubblica (Lýðveldið, stofnað 1976). L´Osservatore Romano „(Frá rómversku varðbergi) er málgagn páfastólsins, merkilegt blað og menningarlegt, sem ekki segir æsifréttir og reynir að þegja syndina í hel“, eins og Helgi P. Briem kemst að orði. Helstu aljóðlegu dagblöðin, s.s. Herald Tribune, Times, er hægt að kaupa samdægurs á helstu ferðamannaslóðunum.
www.ilmessaggero.it

SJÓNVARP
Helstu sjónvarpsstöðvarnar eru níu talsins. RAI er öflugt ríkissjónvarp sem sendir út á þremur sjálfstæðum rásum og innheimtir afnotagjald, en hinar eru gjaldfríar. Þrjár þeirra, Italia 1, Rete 4 og Canale 5, eru í eigu Mediasets, fyrirtækis fjölmiðlafurstans Berlusconis. Tvær, TMC og TMC2, eru í eigu hans helsta keppinautar á afþreyingarmarkaðnum, Vittorios Cecchi Gori (til samans eiga þeir og reka bróðurpartinn af kvikmyndahúsum landsins, og eitthvað rúmlega það). Níunda stöðin er svo Rete 4, tónlistarstöð sem að mestu endurvarpar útsendingum MTV útibúsins á Bretlandi. Við þetta má svo bæta kapal- og gervihnattastöðvum ef manni leiðist, auk staðbundinna stöðva og auglýsingasjónvarps. Eftir miðnætti um helgar sjónvarpar RAI ótalsettum kvikmyndum og ekki allar á ensku.

Lestu líka um bíó í Róm, ítalska skjáinn,
Rómarmyndir og nýjustu Ítalíufréttirnar.

Upplýsingarit um Róm
VIKULEGA
Roma c'é er sérlega gagnlegt vikurit sem kemur út á fimmtudögum. Ritið er á ítölsku, en stuttur kafli á ensku fylgir hverri útgáfu. Auðvelt að átta sig á upptalningunni og er vel þess virði að læra á þessa handbók. í Roma c'è er að finna upptalningu á öllu því sem í boði er þá vikuna; listasýningar og söfn, tónleikar (klassík, djass, rokk), leikhús og ópera, kvikmyndir (þ.m.t. kvikmyndasýningar á frummáli), fyrirlestrar, íþróttaviðburðir, auk þess sem upptalin eru veitingahús og pízzeríur, barir og víneríur og margt fleira. Einnig er sérstök upptalnig á því sem í boði er fyrir börn í borginni. www.romace.it

Time Out Roma
Þetta er ítölsk útgáfa breska vikuritsins Time Out. Blaðið er líkara tímariti en Roma c'é, en kostar það sama og hjálpar manni kannski að velja úr það áhugaverðasta. Þar er m.a. að finna yfirlit yfir veitingastaði sem blaðið mælir með, e-ð fyrir börnin, kvikmyndadóma og sjónvarpsdagsskrá vikunnar.
www.timeout.com/rome


HÁLFSMÁNAÐARLEGA
Wanted in Rome
kemur út hálfsmánaðarlega, ætlað enskumælandi Rómarbúum. Þar er að finna eitt og annað um það sem er á seyði í borginni, smáauglýsingar, þ.á.m. íbúða- og atvinnuauglýsingar, og fréttaskýringar. www.wantedinrome.com

ANNAÐ
TuttoCittá
er sjálfstætt fylgirit með símaskránni, gefið út af Pagine Gialle, Gulu síðunum, og hefur að geyma allar upplýsingar um fjölda og staðsetningu sjúkrahúsa, kirkna og samkomuhúsa, bílastæða, almenningsgarða, safna, íþróttasala og leikvanga, o.s.frv., auk korta af allri borginni og góðs yfirlits yfir almenningssamgöngur.


Roma per te
; guida pratica del cittadino. í riti þessu, sem borgin gefur út, er að finna upplýsingar um allt það helsta sem lýtur að því að búa í borginni; hvert maður snýr sér til að fá dvalarleyfi, hvað þarf að hafa með sér til að opna fyrir síma, o.s.frv. Sjá líka Búið í Róm.

Afþreying
Sjá Bíó í Róm
 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband