E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  HANDBÓK RÓMARFARA
Búið í Róm
  Það er enginn hægðarleikur að eiga við ítalska skriffinna,
en ekki ógjörningur og þá helst að vita hvað þarf
að hafa með sér af skjölum til dvalar í landinu.

Pappírsmál
Venjulega er beðið um ljósrit (fotocopie) af skjölunum, eitt eða fleiri, og nokkrar ljósmyndir (foto) af viðkomandi. Því er heillavænlegast að vera vel birgur af hvoru tveggja en þó alltaf að hafa með sér frumritin. Það sem best dugar í þessum viðskiptum er rík þolinmæði, en líka ákveðni og spyrja vel til að fá rétt svör. Það er háttur skriffinna að vísa á aðra og gera manni að útvega fleiri skjöl en þarf. Helsta ráðið við þessu er að spyrja alltaf fleiri en einn og fleiri en tvo um hvað þarf (og vittu til að þú færð aldrei sömu svörin) og ganga rækilega úr skugga um það við viðkomandi skriffinn að hann sé örugglega ekki sá sem eigi að sinna manns erindi.

Hér eru talin upp helstu dokumentin og gefnar stuttar þýðingar og útskýringar. Nota bene að eftirfarandi upptalningu er ekki ætlað að vera tæmandi, frekar til viðmiðunar, en vonandi einhverjum til skýringar.
passaporto / documento personale vegabréf er það persónuskilríki sem alltaf er beðið um.

Permesso di soggiorno dvalarleyfi.

Codice fiscale kennitala sem notuð er í viðskiptum. Allir verða að hafa cf og er hún fengin hjá stofnun við Via Conciliazione (breiðgatan niður frá Péturstorginu).

Dichiarazione Consolare per motivi di studio yfirlýsig ræðismanns Ítalíu á Íslandi um að viðkomandi ætli sér í skóla í landinu.

assicurazione tryggingar, E - 128 frá Tryggingastofnun, dugar í eitt ár.

Certificato di iscrizione staðfesting á skólavist allt námsárið.

Mezzi di sostentamento staðfesting á framfærslu; sýna launaseðla eða yfirlýsingu frá LÍN.
Dvalarleyfi
Sækja þarf um dvalarleyfi ef dvalið er lengur en 3 mánuði í landinu. Þá fær maður Permesso di soggiorno til þriggja mánaða til að byrja með. Sótt er um dvalarleyfið á kvestúru nálægt via Nazionale.

Þegar sótt er um dvalarleyfi þarf að hafa með sér:

• 4 foto tessera uguali e recenti; 4 passamyndir, nýlegar og allar eins.
• Passaporto + 2 fotocopie; vegabréf og 2 ljósrit af því.
• Certificato di iscrizione alla scuola + 1 fotocopia; staðfestingu frá skóla um innritun og 1 ljósrit þar af.
• Mezzi di sostentamento; staðfestingu á framfærslu (frá LÍN).
• Assicurazione; tryggingar (Tryggingastofnun).

Þegar endurnýja þarf dvalarleyfi þarf að hafa með sér:

• 4 foto tessera uguali e recenti; 4 passamyndir, nýlegar og allar eins.
• Passaporto + 2 fotocopie; vegabréf og 2 ljósrit af því.
• Permesso di soggiorno + 1 fotocopia; dvalarleyfi og 1 ljósrit af því.
• Certificato di iscrizione alla scuola + 1 fotocopia; staðfestingu frá skóla um innritun (allt námsárið) og 1 ljósrit þar af.
• • Mezzi di sostentamento; staðfestingu á framfærslu (frá LÍN).
• Assicurazione; tryggingar (Tryggingastofnun).

Slysatrygging
E-128 er vottorð um rétt til nauðsynlegrar aðstoðar við dvöl í aðildarríki; fyrir nemendur eða vegna starfs í ríkjum EES. Þetta fæst hjá Tryggingarstofnun Ríkisins, www.tr.is

Codice fiscale
Codice fiscale er skattnúmer sem fjármálaráðuneytið ítalska úthlutar hverjum og einum, innfæddum sem útlendingum búandi í landinu. Númer þetta er samsett af bókstöfum úr nafni manns, fæðingarári og öðrum tölum, en er ekki notað sem kennitala. Allir verða að hafa codice fiscale sem dvelja í borginni til lengri tíma og nema eða sinna launavinnu. Skattnúmerið fæst hjá einu útibúi fjármálaráðuneytisins (Ministero dello finanze), Dipartimento delle entrate, sem er í húsi númer 7 við Via Conciliazione. Fyllt er út eyðublað (Domanda di attribuzione del numero di codice fiscale o variazione dati) og fæst þá skattnúmerið til bráðabirgða, en sent heim á plastkorti innan mánaðar eða svo.

Leiga
Það segir sig sjálft að ætli maður að setjast að í borginni um lengri eða skemmri tíma verður að gefa sér tíma í að finna íbúð eða herbergi til leigu og því verður maður að vera búinn að útvega sér tímabundna gistingu meðan á leitinni stendur. Ekki á að vera of mikið mál að finna sér herbergi að leigja með öðru ungu fólki (sjá leiðir til þess hér að neðan) og kostar herbergið að meðaltali um 20.000 kr. (e 250), þó hægt að finna ódýrara. Íbúðir kosta svo um og yfir 40.000 kr. (e 500) og þá helst að finna utan við miðborgarkjarnann, ef maður vill dulítið andrými. Svo er reynandi að hafa upp á námsfólki í borginni sem e.t.v. er tilbúið að leigja út íbúð sína yfir sumarið. Helstu leiðir til að verða sér út um húsnæði til leigu eru eftirfarandi.
Porta Portese smáauglýsingablaðið kemur út á þriðjudögum og föstudögum og eru þar íbúðir auglýstar til leigu (affitasi) og ekki allar í Róm. Einnig á www.portaportese.com, en þar er hægt að setja inn ókeypis auglýsingu í blaðið.

Wanted in Rome er tímarit enskumælandi Rómarbúa og kemur út hálfsmánaðarlega. Þar er að finna eitt og annað um hvað er á seiði í borginni og fréttaskýringar, en smáauglýsingadálkar blaðsins eru nokkuð góðir hvað varðar húsnæðisauglýsingar. Hægt er að auglýsa ókeypis eftir íbúð í blaðinu ef maður sendir örstutta auglýsingu í tölvuósti: wantedinrome@wantedinrome.com. www.wantedinrome.com

Il Messaggero Íbúðaauglýsingar er að finna í fimmtudags- og sunnudagsblaði þessa Rómardagblaðs. www.ilmessaggero.it

Affitti er vikublað sem helgað er leiguhúsnæði.
Svo ætti skólafólk að tala við eða koma við hjá þeim skóla þar sem það ætlar að hefja nám og athuga hvort þar sé ekki boðið upp á e.k. húsnæðismiðlun.

Húsgögn
Í Porta Portese er hægt að finna notuð húsgögn og annað til heimilisins og að auglýsa til sölu, ókeypis. Auðvelt er að nálgast auglýsingar og auglýsa sjálfur á vefsíðu blaðsins, portaportese.com Til að auglýsa þarf fyrst að fá aðgangsnúmer gegn því að láta í té uppýsingar um sjálfan sig. Auðveld og aðgengileg síða.

Bankar
Bankar á Ítalíu eru frekar óaðgengilegir; vel varðir og afgreiðslutímar stuttir. Dýrt og heilmikið pappírsmál að stofna innlánsreikinga, þar eð ekki virðist vera hefð fyrir því að geyma fjámuni sína í bönkum, nema þeir séu svo miklir að ekki komist fyrir heima. Hefðbundnir heimilisreikingar eru greiddir á pósthúsum eða í maskínum.

Nám
Fyrst er að læra málið áður en sest er á ítalskan skólabekk. Ítölskunám er helst að stunda hjá Dante Alighieri stofnuninni (sem ekki skal rugla saman við samnefndan einkaskóla og kannski dýarari) eða hjá fjölmörgum málaskólum öðrum.

ASILS (Associazione Scuole di Italiano come lingua seconda) eru samtök einkaskóla sem kenna ítölsku fyrir útlendinga og eru nokkrir skólar í Róm innan þeirra vébanda. Þá má nálgast á www.asils.it

Comitato di Roma della Società Dante Alighieri Piazza Firenze, 27, s: 06687 3722, fax: 06687 3691. Skrifstofan opin 9,30 - 12 og 17,30 - 19. Námskeiðin hjá Dante hefjast í október og eru haldin út júlí. Hægt er að velja á milli hægfara námskeiða (2 mán.) og hraðari (1 mán.) og kosta um £ 200.000 (u.þ.b. kr. 8.000) + £ 70.000 í skráningargjald. Eina útibú Dante stofnunarinnar sem hægt er að nálgast á Netinu er í Flórens: www.dantealighieri.it

Þess má geta að Dante á Íslandi stendur fyrir ítölskunámskeiðum í samstarfi við Málaskólann Mými, en árlega er tveimur duglegum nemendum (óháð aldri) boðin mánaðar skólavist í einum af skólum Dantes á Ítalíu.

Háskólar
Rómarháskóli, Universitá di Roma, er í raun þrír háskólar sem eru númeraðir eftir aldursröð, en sá elsti heitir La Sapienza (Viskan). Nemendur í skólunum þremur eru á þriðja hundrað þúsund. Erlendir skólar eru margir með útibú í borginni, sérstaklega enskir og amerískir.

(Eftirfarandi frá www.ask.hi.is/page/umitaliu, okt. 2002) Á Ítalíu eru 76 skólar á háskólastigi, þar af 51 ríkisháskóli, og 12 einkaskólar.

Námsgráður: Fyrsta háskólagráða kallast "diplomi universitari" og tekur tvö til þrjú ár. Önnur gráða, "diploma di laurea" tekur fjögur til fimm ár. Háskólarnir í Perugiu og Sienu eru með sérstakar deildir fyrir útlendinga.
Umsóknarferli: Skólaárið er frá október/nóvember til júlí og er umsóknarfrestur yfirleitt frá apríl fram í miðjan maí. Umsóknareyðublöð fyrir háskóla (byrjunarnám) fást hjá aðalræðismanni Ítalíu á Íslandi (sjá Til að byrja með í þessum kafla).

Sjá frekari upplýsingar í handbókinni Nám erlendis
sem Alþjóðaskrifstofa H.Í gefur út.

Eitt og annað
Símakostnaður Til að vita hversu miklu er eytt í síma á ákveðnu tímabili er hringt í 1717 hjá Telecom og þá fæst uppgefin tala (lettura contatore) sem eru hringd skref. Summa þeirrar tölu að frádreginni síðustu skrefastöðu verður hringd skref yfir ákveðið tímabil og þá margfaldast hún með 127 (skrefið kostar £127) og síðan með 1,2 (20% skattur IVA). Útkoman verður símakostnaður tiltekið tímabil.
Netið Vegna annarrar sónartíðni símans þarf netnotandi líklegast að endurstilla innhringibúnað sinn. Nettenginu er hægt að fá hjá ítalska símafélaginu, Telecom Italia (Net) og hjá smærri fyrirtækjum.
Pakkar Í Róm er að finna tvær póstþjónustur en bara eina sem virkar og það er Páfapósturinn.
Búslóðarflutningar Venjulega þarf að panta sendibíl með dags fyrirvara. Hægt er að leigja sér sendibíl (furgone). SÍNE hefur gert samning við Samskip um að félagar í SÍNE njóti flutningstyrkja sem nemur 12% af flutningsjöldum búslóðar. Maður verður m.a. félagi í SÍNE með því að merkja ekki við viðkomandi reit á umsóknareyðublaði LÍN. Ef þú ert nýtur ekki aðstoðar LÍN, eða hefur ekki enn sótt um, en óskar eigi að síður að gerast félagi, t.d. til að njóta þessa afsláttar hjá Samskip, er þér bent á að hafa samband við skrifstofu síne í netfanginu sine@sine.is eða síma (+ 354) 552 5315 . Staðfestingar á skólavist er krafist.
Myndbandaleigur með kvikmyndir á frummáli eru helst Blockbuster myndbandaleigukeðjan (aðeins með myndir á ensku, fyrir utan ítölsku) sem er með leigur á nokkrum stöðum um borgina og kostar aðildarkort um £10.000 og á að vera hægt að nota það um allan heim. Myndbandaleiga í Campo de'Fiori hefur gott úrval af gömlum og góðum Hollywoodmyndum á frummáli. CNV í Trastevere, Via delle Fratte di Trastevere, 44b (Piazza Mastai), s: 06589 7002; bjóða fría aðild og leiga á £ 5.000. Sölumyndbönd er hægt að fá t.d. í Feltrinelli International. Ítalskar myndir á myndböndum, gamlar og nýjar, eru til í ágætu úrvali á ýmsum stöðum, s.s í plötubúðum. Láttu þér ekki detta í hug að kaupa myndband af götusölum. Í fyrsta lagi eru þau ólöglega fjölfölduð, í öðru lagi ónýt og í þriðja lagi á ítölsku.
Rafmagn Hefðbundnir tenglar ítalskir eru þríarma, en okkar tvíarma duga vel í þær sömu klær (en ekki öfugt).
Þvottahús (Tintoria) Þurrhreinsun og önnur fatahreinsun er frekar dýr í Róm, sjálfhreinsanir (laundromat) eru fáar, helst í kringum háskólann.

Viðskipti við okkar góðu vini Ítali
Hagstofa Ítalíu (Istituto Nazionale di statistica) www.istat.it
Samtök iðnaðarins (Cofindustria) www.cofindustria.it/homepub.nsf
Samtök fjölmiðla á Ítalíu ANSA www.ansa.it
Verslunarráð Mílanó www.mi.camcom.it


Húsnæðisskipti
Ef þú býrð á Íslandi og ert að leita þér að húsnæði á Ítalíu eða öfugt; býrð á Ítalíu og vantar húsnæði á Íslandi í skiptum fyrir þitt - þá er Rómarvefurinn kjörinn vettvangur til að óska eftir slíku. Hafðu samband.


ATH! Grein þessi er hugsuð sem leiðbeinandi en ekki tæmandi uppspretta upplýsinga um pappírs- og húsnæðismál í Róm; allt er þar breytingum háð, sem betur fer, og því vonar RV að þú lesandi góður getir bætt við nýjum upplýsingum öðrum til gagns.
 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband