Vefvarpið GúrkaTV hefur
á dagskrá sinni stuttar heimildamyndir,
stuttmyndir, viðtöl og myndverk eftir Kristin
Pétursson. Flestar kvikmyndirnar eru á
.mov sniði fyrir QuickTime spilara, en
nokkrar á .swf og .wmv fyrir
Flash og Windows Media spilara og fleiri. Alla þessa
spilara má nálgast ókeypis
á netinu. Njótið vel!
GúrkaTV
is a personal web-tv showcasing short films by Kristinn
Petursson. Majority of the films are made with a
small camera; the latest with a more adequate film
making tool.
Kristinn Pétursson starfar sem kerfisstjóri
og kennari á Akranesi, en líka sem sjálfstæður
grafískur hönnuður, vefari, ritstjóri
og kvikmyndagerðarmaður undir merkjum Mínervu
- miðlunar & útgáfu.
Vefvarpið Gúrka hefur á dagskrá
sinni vefmyndir eftir Kristin Pétursson, myndir
sem segja sögur, sýna sögu, miðla
tilfinningu eða andartaki sem hefur bara eitthvað
það við sig sem kallar á að linsu
sé beint að manneskjunni, hlutnum, skugganum,
ljósinu.
Gerðu svo vel, poppaðu, heltu upp á kaffi,
te, renndu vatni í glas, komdu þér
vel fyrir í stólnum, sófanum, rúminu,
taktu fram salthneturnar sem frænka þín
skildi eftir í fyrra og veldu þér
mynd til að horfa á.