E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
Rómar[kvik]myndir
  Hér er sagt frá nokkrum kvikmyndum, ítölskum, amerískum o.fl., sem hafa Róm að leiksviði sínu.

Hver er ímynd Ítalíu í kvikmyndunum? Í bandarískum kvikmyndum
(sjáum við nokkuð annað hér á Íslandi?) er Ítalía gamla landið og táknar þ.a.l. gömlu gildin; einurð, fegurð og rómantík, líka prímitivisma og sveitamennsku, blóðhita, villimennsku.

Um Róm má hins vegar segja að hún sé borg ævintýra og töfra, en líka hnignunar, borg auðs og valds, blóðugra bardaga, en fyrst og fremst sögunnar.
 
Nokkrar eftirminnilegar Rómarmyndir
- sem koma manni í réttu Rómarstemmninguna

Rómarfrí Roman holiday > leikstj. William Wyler > Gregory Peck býr við listagötuna Via Margurita og kemst fyrir tilviljun í kynni við hina fögru Hepburn sem að sjálfsögðu reynist svo vera óþekk prinsipía. Saman fara þau vítt og breytt um Róm sjöunda áratugarins. > Skemmtileg mynd > Sjá myndbút á YouTube.com

Hið ljúfa líf La dolce vita > leikstj. Federico Fellini > Marcello og Anita strolla um Róm og nágrenni. Fræg er senan þegar Anita Ekberg kælir sig í Trevíbrunninum.

Í gær, í dag, á morgun Ieri, oggi, domani > leikstj. da Sica (Reiðhjólaþjófarnir, Ladri di biciclette) > Soffía og Marcello tvímenna í þessari ágætu stuttmyndaþrennu da Sica. Miðmyndin, núið, gerist í Róm, ntt. í húsi við Navónutorg og er gaman að sjá hvernig torgið hefur breyst úr bílatorgi 7. áratugarins í hreint mannlífstorg. > Mjög fín mynd; sú fyrsta í Napólí skemmtilegust, en seinni myndirnar tvær eru svo hvor annarri alvarlegri (eftir því sem norðar dregur).

RÓMARFRÍ Leikararnir Gregory Peck og Audrey Hepburn í miðjum Spænsku tröppunum við tökur á myndinni árið 1953.
Sögulegar myndir
- margar myndanna teknar í Cinecittá kvikmyndaverinu í Róm

Rómaveldi
Eftirlæti Júpiters (Jupiter’s Darling, 1955). Leikstj. George Sidney. > Howard Keel, Esther Williams. > Myndin segir frá herleiðangri Hannibals herforingja Karþagómanna yfir Alpana og umsátri hans um borgina Róm, en á þeirri leið á margt eftir að gerast. Og til að bæta gráu ofan á svart kemst þokkagyðjan Ametys í spilið.

Spartakus (1960). Leikstj. Stanley Kubrick. > Kirk Douglas, Laurence Olivier, Jean Simmons og Peter Ustinov. > Myndin er ein höfuðmynda kvikmyndasögunnar. Ungur herforingi, Spartakus er hnepptur í þrældóm um 74 f.Kr. fyrir það eitt að slá yfirboðara sinn. Hann kemst þó undan og leiðir skylmingaþræla og annan undirmálslýð til uppreisnar, sem er að lokum barin niður af mikilli grimmd. Það er stutt labb úr miðbæ Rómar út á hinn sögulega veg via Appia, en þar segir sagan að Spartakus hafi verið krossfestur ásamt um 30 þúsundum (!) uppreisnarfélaga sinna.

Fall rómverska heimsveldisins (The Fall of the Roman Empire, 1964). Leikstj. Anthony Mann. > Sophia Loren, Stephen Boyd, Alec Guinness, James Mason, Christopher Plummer og Anthony Quayle. > Uppfullur af eldmóði og hugmyndum Markúsar Árelíusar (stóuspekingur) reynir rómverski hershöfðinginn Libius að koma á friði í Rómaveldi. Tilraunir hans renna þó út í sandinn og verða þess valdandi að auka fremur en að draga úr glundroðanum innan rómverska ríkisins. Keisarinn og stóuspekingurinn kemur líka við sögu í Skylmingarþrælnum.

Baráttan um Róm (Kampf um Rom, The Last Roman, 1968 – Þýskal.). Leikstj. Robert Siodmak. > Orson Welles, Syliva Coscina og Lang Jeffries. > Cathegus herforingi í Róm heldur til fundar við Jústiníanus keisara í Austrómverska ríkinu. Tilefni fundarins er að fá hann til að aðstoða íbúa Vestrómverska ríkisins til að verjast innrásarherjum Gota. En í raun og veru ætlar Cathegus herforingi sér að etja saman hermönnum Jústiníanusar og Gotum og ná þannig völdum í sameinuðu Rómaveldi.

Kleópatra (1963). Leikstj. Joseph L. Mankiewicz. > Elizabeth Taylor, Richard Burton og Rex Harrison. > Hinar fjölmörgu myndir um Kleópötru Egyptalandsdrottningu fjalla um samskipti hennar við rómversku hershöfðingjana Júlíus Sesar og Markús Antoníus.

Sesar og Kleópatra (Caesar and Cleopatra, 1946). Leikstj. Gabriel Pascal. > Claude Rains, Vivien Leigh. > Handritið að þessari mynd, sem fjallar um ástir og örlög Sesars og Kleópötru, þykir gott, enda var það skrifað af rithöfundinum George Bernard Shaw. Myndin tekur á sig skáldsagnalegan blæ á kostnað sögulegra staðreynda.

Kaligúla (Caligula, 1980). Leikstj. Tinto Brass, Bob Guccione. > Malcolm McDowell, John Gielgud, Peter O'Toole, Helen Mirren. >Myndin fjallar um ævi og störf rómverska keisarans Kalígúla. Hann berst við að halda völdum og lífi án þess þó að verða af óhófslifnaði sem þrífst á æðstu valdastöðum Rómaveldis.

Leikvangurinn (The Arena, 1973). Leikstj. Steve Carver. > Pam Grier. > Myndin segir af ambáttum sem berjast fyrir tilveru sinni á leikvanginum (arena) í Róm. Að horfa á slíka leika var helsta tómstundagaman Rómverja.

Ben-Húr (1959). Leikstj. William Wyler. > Charlton Heston, Stephen Boyd. > Ben Hur er höfðingjasonur í Ísrael og er hann svikinn af vini sínum, hinum rómverska Messala og seldur í ánauð. Hann strýkur og leitar hefnda, en til þess þarf hann að vinna mikil þrekvirki.

Quo vadis Nýja Bíó hefir undanfarna daga sýnt myndina "Quo Vadis".  Aðalhlutverkið, Nero, vitfirringinn í hinu rómverska keisarasæti, leikur  karakterleikarinn Emil Jannings af mikilli snilld. Fólk ætti ekki að láta ónotað tækifærið til að sjá þessa mynd, ef nokkur  tök eru á, því þar fæst rétt lýsing á því villta munaðarlífi sem yfirstéttirnar  lifðu og lifa enn í dag.

Myndin sýnir einnig betur en nokkuð annað þær ógnir og hörmungar sem fasismi  og einræði hefir í för með sér. Áhorfendur fyllast viðbjóði og skelfingu að horfa á alla þá grimmd, ofsóknir og  pyntingar sem beitt er við kristna menn af blóðhundum Neros, en fullvíst er, að  viðbjóðurinn yrði ekki minni ef bíógestum væri gefið tækifæri á að sjá þær kvalir og  pyntingar sem jafnaðarmenn, kommúnistar og Gyðingar hafa orðið að þola af  blóðhundum Hitlers í "þriðja ríkinu".


(Úr blaðinu Neista á Siglufirði frá 1936 - vinstrisinnað, eða hvað? - fengið á vefnum Bíósaga Siglufjarðar http://ljosmyndasafn.
tripod.com
í júní 2002).

Nokkrar nýlegar myndir úr Róm
Betty hjúkrunarkona (Nurse Betty) Myndin endar á útikaffihúsi við torg sönktu Maríu í Trasteverehverfinu og tengist því sem ein persóna myndarinnar segir. Sú hafði farið til Rómar eftir að hafa séð Rómarfrí (Roman holiday) og taldi sig vel þrífast á þeirri minningu.
Hinn hæfileikaríki hr. Ripley (The talented Mr. Ripley) Myndin gerist að mestu á Ítalíu og nokkuð í Róm.
Svo náttúrlega Skylmingaþrællinn (Glatiator), sem mér fannst ansi hreint leiðinleg, en tölvugrafíkin, með miðborg fornu Rómar og Kólosseum, og svo myndatakan ættu að vera þess virði að sjá hana.

Íslenskir vefir og ítalskar kvikmyndir
Á íslenska vefnum Deus ex cinema, www.dec.hi.is, sem tekur fyrir trúarleg stef í kvikmyndum, er hægt að lesa td. umfjöllun um Lífið er dásamlegt, La vita é bella, e. Roberto Benigni >> Lesa

Kvikmyndahátíðir í Róm
Rómverska kvikmyndahátíðin The Roma Independent Film Festival er haldin snemma í apríl ár hvert (www.riff.it), en á haustin er haldin hátíð tileinkuð netmyndum, Cinecittà Internet Film Festival (www.cinecitta.com).
 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband