Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Um áratuga skeið var Róm uppáhaldsáfanga- staður Halldórs Laxness, eins og sjá má af þeim fjölda bréfa sem hann sendi þaðan.
RÓM VERKAR SVONA Á MIG Portrett af Halldóri Laxness eftir Einar Hákonarson, 1984.
Halldór Laxness ferðaðist vítt og breitt um heiminn þar sem hann dvaldi langdvölum við skriftir. Meðal borga og bæja erlendis má nefna Kaupmannahöfn, Stokkhólm, London, Leipzig, París, Taormina á Sikiley, Lúxemborg, Lugano í Sviss, Barcelona, Moskvu, Los Angeles og Salt Lake City. Um áratuga skeið var Róm uppáhaldsáfangastaður hans, eins og sjá má af þeim fjölda bréfa sem hann sendi þaðan.
Það var ekki að ástæðulausu að Laxness kom oft til Rómar á ferðum sínum um heiminn eins og lesa má út úr bréfi sem hann ritaði Auði, konu sinni, hinn 9. apríl árið 1971 frá Zürich. Þar segir:
Oft hef ég komist á stað með nýtt verkefni í Róm, þó ég hafi ekki staðnæmst þar nema nokkra daga, t. d. byrjaði ég Gerplu í Róm, og Innansveitarkróniku byrjaði ég þar tvisvar, þó með 4ra ára millibili; seinni gerðina byrjaði ég þar 25. okt. 1969. Róm verkar altaf einhvernveginn svona á mig.
Í Skáldatíma frá árinu 1963 skrifar Halldór hlýlega um Ítali:
Ég lærði [í Taormínu á Sikiley] meðal annars um ítali þá lexíu sem ég hef oft sannprófað síðar á dögunum, að þeir standa manni næst ef eitthvað bjátar á ólíkt ýmsum þjóðum sem er ljúft að segja ókunnugum manni til vegar og eru þægilegir í tali um veðrið, en leysast einhvernveginn í sundur og hafa afklæðst holdinu á samri stundu og gestinum ber einhver vandi að höndum. Ef ég skyldi einhverntíma komst i vandræði þá vildi ég vera meðal ítala. Þeir féfletta heimska utanbæarkaupmenn og sveitamenn úr Norðurevrópu ef þeir sjá að þeir gánga með rassvasana úttroðna af lausum bánkaseðlum; þykir það sjálfsagt mál. En sá maður útlendur sem stendur uppi allslaus og sjúkur ellegar hefur orðið fyrir óláni og slysi, hann á lykil að hjörtum ítala.
PENSIONE RIIS Bústaður Halldórs í Taormínu á Sikiley þar sem hann dvaldist við að skrifa Vefarann mikla frá Kasmír sumarið 1925. Halldór ferðaðist víða þegar hann var að vinna að verkum sínum til að losna við daglegt argaþras heimafyrir", eins og hann sagði sjálfur.
Halldór skrifaði ekki einasta í Róm heldur kemur borgin víða við í bókum hans, greinum og bréfum. Skynja má í skrifum Halldórs einhvers konar ástar-haturssamband hans við Róm, menningu hennar og sögu. Í Reisubókarkorni frá 1950 hefur skáldið þetta að segja um barokklist borgarinnar:
Á nútímamenn verkar barokkskraut í bókstaflegum skilníngi einsog óþrifnaður. Í þessum þúnglamalega íburði þar sem eingin lína er óbrotin, einginn flötur fær að vera í friði fyrir einhverju vængjuðu marmaradrasli, skjaldarmerkjum, vopnum og fánum úr steini, eða blómskrúði úr gyltum málmi, skynjum við aðeins hávaða og belgíng, sama máli gegnir um þessar endalausu súlur þeirra og súlnaraðir sem ýmist hánga utaná húsunum eða standa undir aungvu, við eigum bágt með að finna í þeim meira listrænt gildi en til dæmis pylsum.
Heimild: Texti, myndir og myndatexti að mestu fengið af vefnum www.gljufrasteinn.is, en Pétur Már Ólafsson skrifaði þann texta.
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.