E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
  PISTILL > KVIKMYNDIR
Bíó í Róm
  Kvikmyndir á Ítalíu eru allar á ítölsku, hvort sem
ræmurnar eru þaðan runnar eður ei. Þeir sem
vilja heyra í stjörnunum sínum í Róm hafa þó
um nokkur kvikmyndahús að velja.

Federico Fellini Fæstir gera sér ferð til Rómar til að fara í bíó, geri ég ráð fyrir. Hitt er öllu algengara að ferðamenn staldri ekki lengur við í borginni en svo að þeir eiga fullt í fangi með að sjá það helsta af borginni sjálfri sem frægt er. Þeir, hins vegar, sem hafa svolítinn tíma aflögu ættu að láta það eftir sér að skreppa í bíó með innbyggjurum og kynnast bíómenningu þeirra.

Bíóborgin Róm
Róm er miðstöð kvikmyndagerðar á Ítalíu auk þess að hafa verið svið ótal kvikmynda innlendra sem erlendra. Vatikanið er ríki í ríkinu, en kvikmyndaverið Cinecittà borg í borginni. Cinecittà (Bíóborg) má muna fífil sinn fegurri, en veldi kvikmyndaversins var sem mest á 6. og 7. áratug síðustu aldar þegar amerískar stjörnur streymdu til borgarinnar að leika í sögulegum stórmyndum og dollarar í kjölfarið. Var Bíóborgin kölluð Hollywood við Tíber. Fæstir gera sér ferð til Rómar til að skreppa í bíó, en þeir sem hafa tímann fyrir sér ættu að láta það eftir sér að bregða sér á bíó með innbyggjurum og kynnast bíómenningu Rómar.

Clint al Leone
Á Ítalíu telst talsetning til helstu listar kvikmyndaiðnaðarins og leikarar þeir sem ljá stjörnum hvíta tjaldsins rödd sína eru ekki síður þekktir en stjörnurnar sjálfar. Þeir leikarar sem t.d. tala inná fyrir Woody Allen og Clint Eastwood eru vel þekktir. En sumir túlka fyrir fleiri en eina stjörnu og þannig er það með leikarann sem talar inná fyrir jafn ólíka leikara og Dustin Hoffmann, Al Pacino, Silvester Stallone og Robert DeNiro - sá ætti að hafa nóg að gera. Talsetning erlendra kvikmynda hófst um leið og hljóð komst í kvikmyndirnar og er því rótgróin hefð sem öllum finnst sjálfsögð. Clint Eastwood karlinn varð að Clint í spagettívestrum hins ítalska Leone. Sagt er að Clint hafi tileinkað sér talhátt leikarans sem léði honum rödd sína, en fyrstu myndirnar voru einungis ætlaðar ítalska markaðnum og leikarar allir ítalskir.

BÍÓGAGNRÝNI
Soffía með Lærin
Því verður tæplega núið um nasir íslenzkra kvikmyndakaupmanna, að þeir ofali almenning á ítölskum kvikmyndum, þrátt fyrir þá miklu grózku og fjör sem umdanfarin ár hefur verið í gerð þeirra. Hérlendum kvikmyndaskoðurum, sem lifa nánast við hálfgerð öskubuskukjör, er endrum og eins leyft af kvikmyndastjúpum sínum að sjá kvikmyndir ættaðar af Ítalíu, en þá eru það oftast holdafarssýningar Soffíu með Lærin og kjötmenna í gervi Herkúlesar og annnarra fornkappa. Meira
Bíómenningin
Í Róm eru fjölmörg kvikmyndahús og flest fjölsala. Eitt sinn voru þetta sjálfstæð kvikmyndahús, en nú eru þeir afþreyingarmógúlar Berlusconi og Cecchi Gori búnir að skipta markaðnum á milli sín. Bíóin heita eftir Sesari og Ágústusi, Alhambra og Alcazar eins og kvikmyndahús hétu gjarnan í þá gömlu góðu daga virðulegra kvikmyndahúsa, Broadway og Cineland. Á sumrin er svo boðið upp á útisýningar á nokkrum stöðum um borgina. Sýningar kvikmyndahúsanna hefjast kl. 15,30 en þær síðustu eru um 22,30. Verð bíómiðans er breytilegt eftir því hvenær dags er farið á bíó, en dýrasti miðinn er þó ódýrari en hann fæst á Íslandi. Hagstæðast er að fara á fyrstu tvær sýningar dagsins. Miðvikudagar eru sérstakir bíódagar og þá er ódýrara. Það voru borgaryfirvöld og kvikmyndahús sem gripu sameiginlega til þessa ráðs til að auka bíósókn.

Popp eða ís?
Ekki hefur verið hefð fyrir því að maula poppkorn undir myndinni eða almennt að matast inni í kvikmyndasalnum, en þetta virðist nú vera að breytast og víða er nú farið að selja poppið góða og kókið. Gúmulaðið er sjaldnast selt frammi við í eldri bíóum, en Ítalir deila þeim leiða sið með okkur Íslendingum að taka hlé og þá gengur sölufólk um salinn og býður fram okkar ómissandi popp og gos, en líka súkkulaði og ís. Allt eins gott en öllu ódýrara er að koma við í næstu búð eða á kaffibar og kaupa nestið.

Bíó version originale
Upplýsingar um kvikmyndasýningar er helst að finna í upplýsingablaðinu Roma c'è sem gefið er út vikulega og daglega í Rómarblaðinu Il Messaggero. Hér verða talin upp helstu bíóin í Róm sem bjóða upp á sýningar á frummáli, version originale. Öll þessi kvikmyndahús sýna einungis enskumælandi myndir, með örfáum undantekningum þó. Sendiráð og menningarstofnanir erlendar bjóða reglulega upp á kvikmyndasýningar á allra þjóða tungum. Að auki eru starfandi í borginni fjölmargir kvikmyndaklúbbar sem standa fyrir sýningum oftast af myndbandi. Mánudaga taka sum bíóin sig til og sýna myndir sínar ótalsettar, en það er reynsla skrifara að treysta ekki á þær sýningar. Tvö fyrstnefndu bíóin eru í miðbænum, næstu tvö í Trastevere, síðstu tvö bjóða upp á einstakar sýningar og kvikmyndahátíðir.

ENSKUBÍÓIN Í RÓM

Quirinetta via M. Minghetti, 4 (miðb., rétt hjá Trevíbrunninum), s: 06679 0012, er í kjallara Quirino leikhússins og sýnir nýlegar enskar og amerískar kvikmyndir vikulega.

Nuovo Olimpia via in Lucina 16/G. (miðb.), s: 06686 1061. Bíó þetta er rétt aftan við þinghúsið í Montecitorio og hefur tvo sali. Það sýnir stundum myndir á frummáli, en hefur annars verið duglegt við að sýna „hinar“ myndirnar sem ekki sjást í bíóhúsum bæjarins, þ.e. góðar myndir nýjar og gamlar víða að.

Pasquino vicolo del Piede, 19 (Trastevere), s: 06580 3622 er að líkindum vinsælasta enskubíóið í Róm, nýuppgert og stærra, staðsett í hjarta Trastevere, eins skemmtilegasta og gamalgrónasta hverfis Rómar. Í tveimur sölum eru sýndar nýjustu amerísku og ensku myndirnar. Vel þess virði að skella sér í bíó hér, þó ekki væri nema vegna þess að á heitum sumarkvöldum er stórum lofthlerum rennt til hliðar og opnað upp í himininn.

Nuovo Sacher Largo Ascianghi, 1 (Trastevere), s: 06581 8116. Bíó í eigu kvikmyndaleikstjórans og leikarans Nannis Moretti, þess hins sama og fékk Gullpálmann í Cannes 2001. Huggulegt bíó með kaffibar og bóksölu sem sýnir oftast þær ágætu myndir sem eigandanum hugnast að sýna.

Palazzo delle Esposizioni via Nazionale, 194, s: 064745 903, lokað þri, er fjölsala sýningahöll þar sem settar eru upp alskyns lista- og sögusýningar allt árið um kring. Þar er og leikhús og bíósalur þar sem ætíð er eitthvað áhugavert að sjá, enda hýsir hann alskyns meiri- og minniháttar kvikmyndahátíðir sem taka fyrir leikstjóra eða þemu.

Il Posto delle Fragole via Carlo Botta, 51 (á milli Kólóseums og Viktorstorgs), s: 064782 4868 er skandinavísk menningarmiðstöð sem m.a. stendur fyrir sýningum Norrænna mynda. Nafnið að sjálfsögðu fengið að láni hjá Bergmanni. www.postodellefragole.org


Skoðaðu líka Rómarmyndir, Fjölmiðla og afþreyingu, Guðað á ítalska skjáinn og Trevíbrunninn hér í Rómarvefnum.

Hvaða myndir eru sýndar í Róm núna og
í hvaða bíóum sérðu t.d. á www.abcroma.com.


Rétta Rómarstemmningin
Og að lokum nokkrar myndir ítalskar sem geta komið manni í réttu Rómarstemmninguna. Hið ljúfa líf Fellínís, La dolce vita, var öll tekin í Róm og því gaman að horfa á hana fyrir, en þó sérstaklega eftir, heimsókn til borgarinnar og sjá Marcello og Anitu og allt hitt liðið rölta sömu göturnar og maður sjálfur var að ganga. Eitt sinn vorum við mestu mátar, C´eravamo tanti amati, eftir Scola er góð mynd og sérstaklega fyrir kvikmyndasögulegt baksvið sitt (það ítalska); Scola sýnir okkur t.d. Fellíní að störfum við upptöku síns fræga Trevíatriðis. Tornatore dregur hins vegar upp heldur dökka mynd af stórborgum Ítalíu í Öllu í besta lagi, Stanno tutti bene: í Rómarstoppi Marcellos sjáum við t.d. téðan Trevíbrunn a la Hitchkock, þ.e., dúfur út um allt sem öllu ætla að drekkja í skít. Meira

Kvikmyndahátíðir í Róm
Rómverska kvikmyndahátíðin The Roma Independent Film Festival er haldin snemma í apríl ár hvert (www.riff.it), en á haustin er haldin hátíð tileinkuð netmyndum, Cinecittà Internet Film Festival (www.cinecitta.com).
 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband